Leita í fréttum mbl.is

Ég dreg ég hér með ummæli mín til baka

Stuttu eftir að ég hóf skrif mín hér á síðunni, var því núið í annað auga mitt að hvorugt þeirra þyldu ljós hins pólitíska litrófs. Að ég gæti ekki tekið breytingum og sætt mig við að lifa undir og búa við svo kallaða "vinstri-ríkisstjórn".

Þá sagði ég að litaskipti eða öllu heldur pólitísk kerfisskipti, ef svo mætti að orði komast, væru stundum af hinu góða. Að ég gæti vel haldið út að sitja undir svo kallaðri "vinstri-stjórn", þó svo að hún væri og yrði aldrei kross á mínum kjörseðli. Þetta gæti ég í krafti þess að ég væri svo heppinn að búa í landi þar sem þingkosningar eru haldnar á fjögurra ára fresti, í það lengsta. Að hámarks sársaukinn (max_pain) fyrir mig væri því í mesta lagi heil fjögur ár. Þá yrði kosið aftur, því þannig eru leikreglur hins frjálsa Lýðveldis Íslendinga.
 
Sagði ég að þetta væri svona hér á landi þar sem við erum meðal annars ekki í Evrópusambandinu, þar sem aldrei er kosið aftur eftir að einu sinni heftur tekist að koma Evrópusambandseinveldinu til valda. Þá er aldrei kosið aftur og allar þingkosningar innan múra rómarsovétríkja Evrópusambandsins þar með orðnar merkingar- og tilgangslausar. Þá væri Lýðveldi Íslendinga þar með búið að kjósa undan sér lýðræðið. Þessa vegna gæti ég haldið fjögurra ára DDR-Síberíu "vinstri-stjórnar" út. Vonin er svona máttug. Ég hefði alltaf vonina til að halda mér í og hugga mig við.

En eftir að hafa kynnst ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingríms J. Sigfússonar, Össurar Skarphéðinssonar og Ögmundar Jónassonar, dreg ég hér með ummæli mín til baka. Aldrei ALDREI má hleypa slíku fólki aftur að völdum hér í lýðveldi okkar Íslendinga undir neinum kringumstæðum. ALDREI. Á genetískri skemmdarverkastefnuskrá þeirra er og verður alltaf meðal flests svarts annars, sú inngróna stefna þeirra að hér verði aldrei kosið aftur.
 
Mikið hefur blessað Lýðveldi Íslendinga frá hinum 17. júnídegi sumarið 1944 mátt þola frá höndum þessa fólks hin síðustu fjögur ár.  

Varið ykkur Íslendingar. Varið ykkur.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eins og talað frá´mínu hjarta. Ég vil gera það að tillögu minni að við stofnum flokk.ekki til þingkosninga,heldur til að vinna að upplýsingum til þeirra fjölmörgu sem hafi ekki hugmynd um hvað er raunverulega að gerast. Þú (og auðvitað fjölmargir fleiri) hefur upplýst mig með þinum frábæru pistlum og hef ég verið að reyna að deila því með fólki sem hefur litlar upplýsingar um hættuna sem stafar af þessum kvislingum. Seinast í gær hringdi í mig gömul vinkona,sem eins og ég hef aldrei kosið vinstriflokk,þótt mér finnist þeir eins og samherjar núna margir hverjir. Hún sem er vel gefin kona,en hefur engan tíma til að afla sér upplýsinga um hvaðeina sem er okkur hollt að vita,vissi ekki að efta dómstóllinn er ekki aðfarahæfur ef við verðum dæmd vegna Icesave. Þannig hitti ég konu,sem sagðist vilja vita hvað kæmi út úr samningunum við Esb. Ég eyddi drjúgum tíma í að segja henni sannleikann um þau mál. Þarna kemur fjandast Rúvið að,sem margir gamlir trúa á. Vonandi herða þeir ekki roðurinn ef þeir njósna um áhrif þess. Við bara verðum að útbúa stuttar lýsingar á blöðum og dreyfa,stundum fara á´heimilli kunnugra sem nenna ekki að lesa,finnst allt leiðinlegt sem þau halda kosningaáróður. Við sjáum hvað þessir aumingjar gera,ná í áhrifamikinn fjölmiðil og nýta sér sannfæringu þáttastjórnanda,sem þó vill ekki í Esbéið og hann dælir úr sér,æsist allur upp í endalausum fullyrðingum hve þetta ólöglega stjórnlagaráð hefði unnið vel að gerð draga um Stjórnarskrá.En ég verð þó að segja að margir eru ótrúlega vel að sér,en við verðum að ná í þá alla. Þetta rita ég sem fyrst kemur upp í´hugann án nokkurra pæling um hvernig það gæti gengið. Ég hef alltaf vaðið í allt á fullu,oft borgað sig margfalt.En ég hjóla nú ekki eins og ungbarn lengur,en eins og segir í gamalli auglýsingu;,Hún er gömul en gerir sitt gagn;. Fer ekkert yfir þetta að gá að stafsetninga villum bið þa bara forláts fyrirfram. Takk fyrir allt sem þú hefur skrifað Gunnar minn,lifðu heill.

Helga Kristjánsdóttir, 9.12.2012 kl. 02:31

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga

Stóri flokkurinn okkar er sjálft þjóðríki Íslendinga; Lýðveldið. Hann ræður og hann ætti til dæmis að taka DDRÚV inn á teppið til að leysa það upp í þeirri mynd sem það nú er í. DDRÚV er ekki lengur það Ríkisútvarp Íslands sem þjóðríkið setti á laggirnar. Það er orðið pólitísk ófreskja og nómenklattúrísk klessa ofan á þjóðríki okkar. Það er 70-90 prósent kommúnistar og hörð kratísk slagsíða ÖNDVERÐ við tilgang þess.

Við höfðum innréttað þjóðríki okkar þannig að það væri ekki þörf á því að allir í því múruðu sig inni í sjérfjélagi, klúbbum eða samtökum. Allir voru fyrst og fremst í stóra félaginu: þjóðfélaginu. Á sjálfu gólfinu. Gólfið á að ráða.

Það liggur við að ég biðji Forseta Lýðveldisins um að leysa upp þingið nú þegar! Þetta er orðið svo hryllilegt fyrir Lýðveldið þessi ríkisstjórn og hjáliðsmenn hennar

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.12.2012 kl. 03:20

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka fyrir góða grein og ámynningu. Ég hef oft hugsað að eina ráðið væri að banna pólítíska flokkadrætti og hver og einn þingmaður situr bara eitt tímabil.

Valdimar Samúelsson, 9.12.2012 kl. 10:30

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það eru margir í svipuðum sporum og þú Gunar en fleiri í enn verri stöðu.

Margur gat sætt sig við að vinstri stjórn sæti hér eitt tímabil, enda einungis um að ræða fjögur ár. Aðrir gátu jafnvel hugsað sér að kjósa slíkt stjórnarfar í síðustu kosningum, en létu það vera. Þeim líður illa nú og fæstir vilja kannast við þá flónsku sína.

Verst er þó farið fyrir þeim sem létu blekkjast, þeim sem af sakleysi sínu trúðu orðskrúðnu og fjálgmælinu. Þetta fólk á virkilega bágt.

En öllu illu fylgir eitthvað gott og það góða við þetta kjörtímabil er að vinstri flokkarnir hafa spimplað sig út úr stjórnarráðinu um langa hríð. Þó tímasetningin hafi ekki verið sem best, svona þegar mest þörf var á einhvejum vitibornum þar innandyra, þá hafa vinsti flokkarnir komið sínum boðskap vel til skila. 

Þjóðin mun þakka þann boðskap í næstu kosningum og muna hann um aldur og ævi.

Gunnar Heiðarsson, 9.12.2012 kl. 10:48

5 Smámynd: Jón Sveinsson

Já kjæru bloggarar það er verst að sumt fólk sér ekki rétt frá röngu gagnvart þessari svokallaðri vinstri stjórn,

Og á það mjög bágt geta ekki viðurkent að það gjörði rankt með stuðningi við þetta lið en ég vona að sem flestir sjái af sér því að það er þjóðar skömm að vita að svona fólk stjórni landi voru því svik við þjóð sína er Algjör hjá þeim...

Jón Sveinsson, 9.12.2012 kl. 13:41

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir með þér Gunnar að þessi fjögur ár eru orðin allt of löng og dýr. 

Kostnaðurinn af hruninu var alveg nóg, þó að ekki þyrfti að bæta á það kostnaðnum af ríkisstjórn Jóhönnu vitlausu og hennar skástífu fláráðnum Steingrími þvaðurmaskínu og axarskaftasmiði hinum flónskasta lygamerði íslandsögunnar.     

Hrólfur Þ Hraundal, 9.12.2012 kl. 13:48

7 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Takk fyrir þetta Gunnar.

Eyjólfur G Svavarsson, 9.12.2012 kl. 15:10

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir til ykkar fyrir innlitið og skrif

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.12.2012 kl. 17:43

9 Smámynd: Elle_

100% lýsing á þessu forræðishyggju-skrímsli, hinni stórhættulegu stjórn og stjórnarflokka.  Nei, aldrei ALDREI segi ég líka.  Það má ekki gerast að við hleypum aftur öfgamönnum í ríkisstjórn.

Elle_, 9.12.2012 kl. 18:19

10 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Takk fyrir góða grein og greiningu Ég er sammála þér í öllu sem fram kemur hjá þér.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 9.12.2012 kl. 20:21

11 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég held svona svolítið að við íslendingar verðum sjálfir að taka í taumana og finna leiðir sjálfir sem væri farsælust fyrir okkur.

Er ekki að sjá að önnur stjórn 4flokksins verði neitt betri en þessi. Það er kominn tími til að losa okkur við hægri - vinstri - miðju gjálfrið og velja nýjar leiðir. Eins og tildæmis alvöru lýðræði með alvöru persónukjöri og það mætti svo vera með að ef fólk er ekki að standa sig í starfi þá væri hægt að segja því upp!

Guðni Karl Harðarson, 10.12.2012 kl. 00:34

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Gunnar.

Hvern getur Steingrímur J. fengið til þess að semja næstu kosningaloforð fyrir VG? Er til það hugmyndaflug í landinu sem til þess þyrfti? Ég bíð bara spenntur.

Halldór Jónsson, 10.12.2012 kl. 08:15

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Aftur þakkir fyrir skrif ykkar og innlit. Og þér drengur Halldór minn.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 10.12.2012 kl. 10:38

14 Smámynd: Elle_

Vil að það komi fram að ég var alls ekki að meina alla vinstrimenn og alls ekki alla alþingismenn í VG.  Það er Samfylkingin sem ætti að eyða úr stjórnmálum.

Elle_, 10.12.2012 kl. 15:31

15 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Elle, það má víst ekki eyða SF, en hún mætti gjarnan einangrast til langs tíma. Það verður erfitt verk, því að SF er slímugt fyrirbæri og slóttugt.

Þakka Gunnari Rögnvaldssyni fyrir frábæra grein sem og oft áður.

Kveðjur til ykkar allra, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 11.12.2012 kl. 05:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband