Leita í fréttum mbl.is

Munkaþverskurðarmynd seðla

Eins og allir sjá hafa munkaklaustur seðlabanka þegar bjargað heiminum. Svo kallað Twiggy sjálfstæði seðlabanka sem vannst eftir linnulausan þvætting hagfræðinga í Karnabæ heimskunnar, hefur nú bjargað heiminum. Það sjá allir. Og hin flottu verðbólgumarkmið (e. inflation targeting) seðlabanka heimsins undir fullu sjálfstæði þeirra hafa auðvitað þegar bjargað efnahag allra manna þessa bjargaða heims. Þið sjáið þetta; Grikkland - Portúgal - Írland - Spánn - Ítalía - Slóvenía - Kýpur - Slóvakía og svo þetta sértilfelli tólfmanna peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands, þar sem yfirmunkur Már hefur peningastefnt ríkinu. Subby prime lán Vestanhafs urðu við það og löngu áður að ösku í bakka á meðan seðlabanki Þýskalands hefur aðeins í helmingi allra tilfella allt frá rústaforfæðingu sinni árið 1948 náð settum (en illilega fölskum) verðbólgumarkmiðum sínum. Fímmtíu prósent fíaskó eins og á auglýsingastofum. Enginn veit þar hvor helmingur hefur virkað né hvorn helming fræðanna á að skera burt úr budgettinu.

Peningastefnan — sjálfstæði seðlabanka og verðbólgumarkmið þeirra undir geislabaug fræða — hefur nú þegar unnið kraftaverk sitt á til dæmis apaplánetu sovétríkja Evrópusambandsins. Tveir þriðju af skattatekjum spænska ríkisins frá atvinnurekstri fyrirtækja er horfinn. Zapp! Rúmlega einn fjórði hluti alls vinnuafls Spánar er án atvinnu og mun verða það í enn ríkari mæli um langa langa framtíð. Ríkisstjórn landsins hefur því hafið stórfellt áhlaup á tíu ára gamalt ellilífeyrissjóðakerfi landsins. Hafið áhlaup á ellisparnað borgaranna, eftir fyrst að hafa þurrkað þá út sem smáhluthafa í sparisjóðakerfinu. Allt er og mun verða gert til þess eins að halda sér á floti í síkinu sem umlykur ECB-seðlabankahöll Evrópusambands sovétríkjanna, þar sem sogrör Þýskalands á inntak sitt. Enginn borgari kemst nokkurn tíma lifandi yfir síkið til að henda neinum matvælum upp í ECB-seðlabankann.
 
Þar inni þramma vitstola peningastefnumenn sovét-seðlabankans örmagna um næfurþunnt peningagólfið, íklæddir snjóþrúgum ofan á bólginni — und gagnsærri hah! og brestandi lífhimnu myntbandalagsins. Og nú segir FED'ið alla leið yfir frá Bandaríkjunum að ECB-seðlabanki sovétríkja Evrópusambandsins sé kominn ofan í vasa ESB-stjórnmálamanna; sem enginn kaus til neins. Eða öfugt; að stjórnmálamenn séu komnir ofan í vasa bankans, sem líklega er öllu réttara. Munkakuflar hafa jú enga vasa nema blómavasa, eins og allir vita. Þess vegna stefnir sannur seðlabankamaður ríkinu til þess að geta bætt í bankann blómum sínum.

Hámenntaðir vinstri- og miðlægir einfeldningar halda enn að fjármálakreppan hafi verið orsök þeirra hamfara sem þegar hafa orðið og bíða enn í stóru stóru dyragættinni. Að einn rétt stilltur takki inni í einhverjum eða öllum seðlabönkum heimsins, inni á þingi eða í ríkisstjórn stjórnmálamanna, geti lagað þetta. Of margir sannir hægri íhaldsmenn halda hins vegar að eitt dyggðar-fix-trix í ríkisfjármálum inni í ríkisstjórn muni lagfæra það sem þeir greinilega halda einnig að sé afleiðing en ekki orsök. Allir vængir fuglsins hafa hroðalega rangt fyrir sér. Hann baksar og hrapar.

Fjármálakreppan er afleiðing, en ekki orsök. Hún er afleiðing stjórnmála. Ekkert mun geta lagfært hin langvinnu áratugalöngu krónísku mistök stjórnmálamanna sem lifa á hærigraut úr fræðimannaforða seðlabanka; og sem samkvæmt áætlun stunda alþjóðlegt samsæri gegn fólki þjóðríkjanna í nafni "samhæfingar" (e. coordination). Undir þessu samsæri er auði þjóða tortímt.

Stóra súgþurrkunin undir þessu falska peningagólfi seðlabanka og stjórnmálamanna mun fara í gang. Þá verður ekki gott að vera of skeggi vaxinn. Þetta vita menn þegar í of mörgum bönkum veraldar.
 
*** 
 
Látum manninn eina aka bremsulausu píanóinu einu sinni enn. Hann þurfti aldrei bremsur því hann kunni á hraðann og hafði betri tilfinninu fyrir veginum en nokkur annar
 
 
Bein krækja á Horowitz
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband