Leita í fréttum mbl.is

"Viðskiptavinir og bandamenn vinstri stjórnar." - Segið mér að þetta sé ekki satt

Að tryggja sig gegn hagsæld. "Hedging against prosperity?" 

Eiga blóðsugur bankakerfi Íslands núna? Mennirnir á tökkunum?

Mér svelgdist á morgunkaffinu þegar ég las eftirfarandi á Evrópuvaktinni.

Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar, að fyrsta ómengaða vinstri stjórnin á Íslandi yrði helzti viðskiptavinur og bandamaður vogunarsjóða í útlöndum, sem enginn veit hver á og hvað eru að bauka . . [. .] . . Kannast einhver við hin merku fyrirtæki Arrowgrass Masterfund og ACMO S.A.R.L.? Vafalaust ekki. Sjálfsagt ekki frekar en þegar Tortolaeyjar voru fyrst nefndar á nafn í Staksteinum Morgunblaðsins um miðjan síðasta áratug . . 

Allur pistillinn hér:  Arrowgrass og ACMO-viðskiptavinir og bandamenn vinstri stjórnar!

Traders eiga bankakerfi Íslands? Spilafíklar, takkar! Vampírur liggja á hagkerfinu í kreppu? Ekki er undarlegt að hagvöxtur sé horfinn. Hann er einfaldlega kyrktur með þessu óvitavædda bankakerfi Steingríms og Jóhönnu. Það getur aldrei gengt hlutverki sínu með svona eigendur.

Gott bankakerfi er eins mikilvægt hagkerfinu eins og vatn er í Sahara, og áburður er búskap. 

Nú fer maður að skilja ýmislegt. Ég var þrátt fyrir allt ekki geðbilaður.

Munurinn á fjárfestum og spákaupmönnum t.d. vogunarsjóða (e. hedge funds) er eins og munurinn á vatni og eyðimörk. Þetta eru algerlega andstæð öfl. Raunverulegir fjárfestar eru maraþonhlauparar fjármála. Hafa oft gríðarlega þolinmæði. Þeir festa fé fast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm...það var nú gengið á Steingrím fyrir löngu um það hverjir væru á ferð en hann krossneitaði að gefa það upp.  Allt gegnsætt og opið sem fyrr. Margir bentu á þetta og höfðu hátt um, en Steingrímur þurfti bara að mæta í eitt viðtal og segja "kjaftæði" og þá sofnaði heilinn á þjóðinni og ekki var minnst á þetta meir.

Kíktu á disclaimerinn sem mætir þér, þegar þú skoðar Arrowgrass.

Hér hafa innheimtur einmitt gengið út á það að setja eða hóta því að setja kröfurnar i hendur ljótum grimmum og smaviskulausum vogunarsjóðunum, ef menn borguðu ekki. Þessi skelfilegu fyrirtæki hafa verið notuð sem grýlur á skuldara og engin hefur þorað að segja frá eftir að hafa verið kyrfilega intimiteraður í prósessnum. (Ef þú segir orð, þá drep ég þig...tæknin)

Það eru alvöru Mafíuvinnubrögð í gangi hjá bönkunum undir verndarvæng Don Steingríms.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.5.2011 kl. 12:37

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sýnist þetta vera Bretland, Holland og Lúxembúrg m.a.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.5.2011 kl. 12:47

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Icesave á undifötunum.

Ragnhildur Kolka, 28.5.2011 kl. 13:04

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Bretland, Holland og Lúxembúrg m.a. eru þau ríki sem hafa enga hag af því að Íslenska krónan styrkist.  

Júlíus Björnsson, 28.5.2011 kl. 15:24

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Klípa sig í handlegginn margir þessa dagana sem trúðu því að ríkisstjórnin væri nú þrátt fyrir allt að vinna fyrir fjölskyldurnar í landinu þótt ekki lægi það í augum uppi!

Þetta er orðið venjulegu fólki óskiljanlegur andskoti.

Árni Gunnarsson, 28.5.2011 kl. 17:29

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ræningja-heimsmafían er landamæralaust ógnar-tortímingar-afl. Heiðarleiki og réttlæti ásamt kærleika, eru mafíunnar verstu óvinir! 

Hvað vita innstu pottar í búri pólitíkur á Íslandi og í heimsmafíu-stýrðu svikapólitíkinni, en geta ekkert gert, án samstöðu almennings, til að bleyja af spillingarbraut ræningjanna! Það verða allir að þora að leggja spilin á borðið! Einelti virkar þannig að enginn þorir að segja frá hótunum, og með því að segja frá einelti og hótunum mafíunnar, rofnar kerfi mafíunnar, og hún missir tökin!

Í almættis bænum, segið frá, öll sem vitið eitthvað um hvernig þetta svika-kerfi er uppbyggt!

Samstaða "svokallaðra" vinstri og hægri afla er eina leiðin inná beinu brautina! Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. 

Samstaða og samtakamáttur þjóða heimsins er eina leiðin áfram, og nú er að duga eða allir drepast! Eða þurfum við fleiri áminningar almættisins, heldur en vægt andvarp Grímsvatna-búa!

Öllu hefur verið snúið á haus í vestræna heiminum, þar á meðal því að hið illa væri í eldinum í neðra! Fals-kristnin hefur logið því að vestrænum ríkjum, til að af-jarðtengja almenning, og ná valdi yfir öllu, með alls kyns hálfsannleik í háskólum heimsins, og svikulum peningum.

Við sjáum útkomuna!

Hið góða er ekkert síður í eldinum í neðra, heldur en orkunni í efra! Okkur var öllum gefið vit og skynjun til að nýta til það til góðs, en ekki til að láta blekkjast af illum peninga-öflum, til sjúklegs ráns-gróða, einskisverðra peninga. Nú er að skilja þetta og fara eftir því! Það er ekki seinna vænna, að nálgast kjarnann og sannleikann!

Almenningur heimsins verður að standa saman að friði og réttlæti, til að bjarga móðurjörðinni okkar allra, frá sjúkum peningaöflum gereyðingar! Án jarðarinnar okkar allra, erum við ekkert!

Sameinuð stöndum við og sundruð föllum við öll!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.5.2011 kl. 17:59

7 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Þetta er bara hið sanna andlit vinstri stjórna.  Því miður með sínum ljótasta svip.

Steingrímur og Jóhanna eru ekkert voða sæt, en ekki eru verk þeirra fallegri.  Því er nú ver og miður fyrir litla Jón og litlu Gunnu.

Það eru ætíð hagsmunir "heildarinnar" í fyrirrúmi.  ...Og þegar peningaöflin eru nógu stór tekst þeim að snúa valdasjúkum vinstripólitíkusum í kring um litlaputtan.  ...Reikningurinn verður jú bara sendur á "einstaklinga".

Alvöru vinstripólitíkus vill ekki að "einstaklingar" hafi há laun því í þeirra augum skiptir ekki máli að dugnaður einstaklings skipti máli.  Það er ekki einstaklingurinn innan stofnunarinnar sem skiptir máli.  Það er víst stofnunin sem vinnur vinnuna.  Alvöru vinstripólitíkus vill ekki að fólk fái að velja hver vinnur fyrir þá eða með þeim, því allir eru jafnir.  Skurðlæknirinn frá Yale er víst alltaf jafn góður og skurðlæknirinn frá Arkangelsk.  Smiður er smiður o.s.frv.

Litli kallin skal ekki njóta vinnu sinnar.  Litli kallin getur borgað peningaöflunum ef þau eru svo stór að þau jafnist á við "heildina"...

Og by the way.  Draumur krata er kanski fallin í Grikklandi; 

http://www.zerohedge.com/article/spiegel-greek-hit-piece-2-bailout-troika-finds-greece-missed-all-fiscal-targets-next-steps-g 

Jón Ásgeir Bjarnason, 28.5.2011 kl. 20:49

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í Evrópu einkennast vestræn ríki af þeirri hugmynd, að Ríkið sé stöfnum á föstum tekjum hjá markaðinum.  Hluti þessara tekna fer í að móta og gera hæfa verðandi stafsmenn sömu stofnunnar.  Skyldur starfsmanna ríkisins er líka fastar og vel skilgreindar.  Þeir eru hvorki duglegir eða latir í vinnunni. Þeir uppfylla kröfurnar og standa undir skyldum. 

Hér í framkvæmd á Íslensku. 

Hægri kommar leggja áherslu á duglega ríkistarfsmenn, til réttlæta hærri skatta meðan vinstri komnar vilja að Háir skattar komi dugnaði ekki við.      

Sumir einstaklingar eru framúsrskarandi skurðlæknar aðrir ekki. Fullnægndi góðir eiga að útskrifast  og tryggja á sem fyrst að ekki fullnægjandi góðir finn sér annan farveg þar sem þeir eru fullnægjandi góðir.

Um ríkið gilda ekki sömu sjónarmið og markaðinum sem stendur undir kostnaðinum við stofnununa.   

Sérhvert samfélag verður að draga mörkin á milli Ríkisins sem stofnunnar og þess sem best er að einstaklingar sjái um á sína eigin ábyrgð.

ESB skilgreinir með lögum, að ofan á tekjur sérhvers starfsmanns stonunnar [ESB] EU er lagður launaskattur til að taka af aftur, svo stafsmaðurinn njóti sömu virðirnar og aðrir sem standa undir tekjum EU.    Þetta er í samræmi við  borgarlega skilning á tekjum og álögðum föstum sköttum til útreikninga heildarlauna í vestræna hluta [ESB] EU.

Íslenska launa skilgreining er sennilega frá því að Ísland var nýlenda.  

Erlendis í upphafi voru launaskattar settir á fyrirtæki og síðar dreift á alla starfsmenn til að þeir nytu meiri virðingar og skattarnir skiluðu sér betur. Fyrtækið getur verið með afkasta tengt tekjukerfi.  Hér er forstjórinn látinn borga alla launskatta í samanburði. Hægri menn í vestrænum löndum hafa alltaf verið á móti afkasta tengdum sköttum til ríkisins.  Þegar atvinnuleysi fór að magnast  fyrir hundrað árum fóru geirar sem  ekki gera kröfur til dugnaðar og afkasta að vaxa. Áherlsur urðu  meiri og meir að allir hefðu vinnu. Dreifa vinnunni jafnt á alla. Færa afkast þörfina yfir á frítíma launþega.

Ísland er mjög frumstætt og hugsar eins og nýlenda því miður. Dugnaður ríkis mælist í samanburði í gróft metnum þjóðartekjum.  Íslendingar er sannarlega í heildina litið að verða minna duglegri með hverjum degi.

Ég vil velja áfram fullnægjandi góða lækna. Ég hef tekið eftir því að skurðlæknar hafa mjög góðar hendur og tala af reynslu.  Ég vil ekki að samborgarar mínir neyðist til að velja óhæfa lækna.

Júlíus Björnsson, 28.5.2011 kl. 21:40

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Jón Ásgeir. Það er erfitt að sjá hvað þú ert að fara í þessari athugasemd utan þess að hata vinstri stjórnir. Það verður erfitt að finna svip vinstri stjórnar eða nokkra vinstri pólitík í verkum þessarar ríkisstjórnar þótt þú viljir auðvitað fella öll þeirra verk undir það.

Ég bið um upplýsingar um  vinstri menn eða vinstri stjórnir sem endurreisa efnahagslíf þjóðar á forsendum fjármálaafla, banka og peningasjóða. Hér hafa auðmenn og fjármálastofnanir notið forgangs í öllu ferli svonefndrar viðreisnar og þú vísar í hugarfar vinstri stjórna!

Býstu við að einhverjir skilji þessa skilgreiningu?

Mín skilgreining á verkum þessarar ríkisstjórnar er þjónkun við AGS með von um gott veður fyrir aðildarumsókn í ESB. 

Til viðbótar óskiljanleg og glórulaus heimska í stjórn fjármála.

Þessi ríkisstjórn er nefnilega bæði hægra og vinstra megin við þokkalega dómgreind.

Árni Gunnarsson, 28.5.2011 kl. 21:55

10 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Getur verið rétt, því haugur af bréfum í gömlu bönkunum var selt á slikk af evrópskum sjóðum, sem vegna eigin reglna verða að selja bréf þegar þau falla niður fyrir tiltekið viðmið.

Það eru tiltekin fjárfestingarfyrirtæki, sem sérhæfa sig í viðskiptum með vafasama pappíra. Ekki ólíklegt að slík séu stórir eigendur í Arion og Íslandsbanka.

Veit ekki hvað þau heita. Kannski þessi tilteknu.

Sannarlega kaldhæðnislegt, að vinstristjórn sé að selja bankana til svo kaldrifjaðra fagfjárfesta. Svona fólk er með því harðasta og kaldasta í bissness og þú getur fundið.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 28.5.2011 kl. 22:04

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég var hægt að afskrifa allt strax og  byrja svo allt upp á nýjum grunni. Þá hefðu þeir sem fór sér hægt í eiginlegum rekstri og lánuðu óvarlega afkastengt misst allt sitt með réttu.  Gjaldþrot er besta lækning í frjálsri keppni og á frjálsum markaði.  Réttir aðilar eru enga stund skilja arði in regluverks sem hampar þeim.  Sýnishorn á verðtryggðum veðsöfnum bankanna, metin gjörsamlega óverðtryggð miðað við allar neysluvísitölur heimsins, gefa vogunarsjóðum líka upplýsingar um önnur samskonar eignasöfn hér á landi. Ísland er tæknilega gjaldþrota. Kröfuhafar eru að mjólka síðustu dropanna úr kúnni.

Júlíus Björnsson, 28.5.2011 kl. 22:16

12 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Árni.

Hvernig er hægt að segja að verk fyrstu hreinu vinstristjórnar séu í raun ekki vinstri handar verk?  Ég bara skil ekki það.  

Rök stóru fjármálaflana í okkar vestræna heimi hafa verið gegnumgangandi á þessa leið;  Okkar samfélagslega mikilvægi er of mikið til að við megum fara á höfuðið.

Svona orð elska vinstrisinnaðir.  Samfélagslegt mikilvægi!  Fyrir það setja þeir heilu samfélögin beinustu leið á kúpuna.

Hvað sagði Steingrímur um Sjóvá þegar hann beilaði rotið kompaníið út úr verðskulduðu gjaldþroti?  

Sjóva er afskaplega mikilvæg grunnstoð í okkar samfélagi...  Eða eitthvað á þá leið.

"Samfélagslega mikilvæg".  Ómissandi fyrir heildina... og vinstrisinnar pissa í buksurnar.

Þeir senda meira að segja eigin samfélag beint í gin hákarla stórkapítalsins eins og sorgleg dæmin sýna hér á okkar ágæta landi þegar þeir heyra um samfélagslegt mikilvægi stórkapítalsins.  Fyrir utan öll dæmin frá útlandinu... (Grikkland og suður Evrópa, sorglegt og enn lifandi dæmi).

Það finnast því miður margir Steingrímar.  Það máttu vita Árni.

Jón Ásgeir Bjarnason, 28.5.2011 kl. 22:18

13 Smámynd: Júlíus Björnsson

Á Íslandi í efnahagslegu samhengi bara um aulaverk að ræða. Hvernig er hægt með allt þetta hráefni og orku og vatn og súrefni að missa niður allra þjóðartekjur í samanburði við aðrar þjóðir á 40 árum? 

Júlíus Björnsson, 28.5.2011 kl. 23:38

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið

Arni, maður klórar sér.

Einar Björn, "kaldhæðnislegt" er mjög vægt til orða tekið. Hedge funds (vogunarsjóðir) eru hvorki fjárfestar né fagfjárfestar. Þeir eru bara einfaldir braskarar og enginn veit hvað fer fram þar innanborðs. Þannig eru reglur þeira.

Út frá macro (þjóðhagslegu) sjónarmiði eru vogunarsjóðir slæmir fyrir samfélagið því þeir geta aldrei gengt hlutverki fjárfesta eða bakhjarls. Út frá sjónarmiði fljótanleika markaðsins eru vogunarsjóðir stundum álitnir nytsamlegir. En nytsemi þeirra nær þó aldrei að uppfylla lögmáli markaðsbúskapar; þ.e. að menn sitji sjálfir uppi með áhættutöku sína og taki sjálfir af þeim tapið og gróðann ef svo ber undir. Vogunarsjóðir eru alltaf fyrstir til að selja þegar markaðurinn gengur illa og þá fyrstir til snúa sér að skortsölu til að þéna á óförum annarra. Þeir þurrka alltaf tapinu yfir á aðra og þá réttmætari aðila markaðarins sem líta á hann sem einmitt það þarfaþing sem hann er.

Þetta eru þeir verstu eigendur sem ríkið yfir höfuð gat fundið. Og það allra allra versta sem gat gerst í íslenska hagkerfinu undir áföllum.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.5.2011 kl. 23:59

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

En "heppilegt" að ríkið skuli vera skyldugt að leggja þeim til peninga. Þá er bara að koma sér í gang með að eyðileggja innviði hagkerfisins sem fyrst og koma þannig af stað fjárstreyminu frá skattgreiðendum.  

Gunnar Rögnvaldsson, 29.5.2011 kl. 00:07

16 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hér um árið fyrir hrun voru svokallaðir vogunarsjóðir höfuð óvinur Seðlabankakerfis EU og ógnun við evruna.  Einnig um 2006 gerðu USA og EU opinbert samkomlag um að upprætta bankaleyndar paradísir skatt tekjuþjófa allra Seðlabanka.  Þá var ævintýrið sem hófst á Ísland endalega búið að mínu mati. EU valdi Luxemburg til taka við af Sviss.  Ísland valdi sig sjálft og byrjað að fjárfesta í nýjum atvinnuvegi um 1983. Þegar EES var gulrótinn.

Júlíus Björnsson, 29.5.2011 kl. 00:10

17 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hægri, vinstri, margir telja þessi hugtök vera gengin sér til húðar hér á landi og vísa þá til pólitískrar vinnu og stefnumörkunar.

Við eigum að nota pólitík hægri manna með hófsemi ásamt félagshyggju og blanda heilbrigðri skynsemi saman við.

Ég er kominn á þá skoðun að nú þurfum við að breyta áherslum og skoða hvort hugsast geti að bætt pólitískt siðferði í sinni einföldu mynd sé ekki það bakland sem skortir til að lyfta okkur upp úr þrengingunum.

Mín skoðun er að forysta ríkisstjórnarinnar sé ómerkilegt fólk. Það gengur ekki að láta ómerkilegt fólk drýgja þjóðum örlög.

Það hefur hvergi blessast.

Árni Gunnarsson, 30.5.2011 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband