Leita í fréttum mbl.is

Óbrotnum lánshæfnismat hent fram hjá yfirfullri ruslatunnu þeirri er nefnist ríkisstjórn Íslands

Mbl; "Matsfyrirtækið Moody's staðfesti í dag óbreytt lánshæfismat íslenska ríkisins"

Þjóðin vill óbrotinn mat og það fékk hún. Íslenska þjóðin er í gamalgrónu og sterku jarðsambandi við sitt gamla Ísland. Hún þekkir vel hvers megnugt landið okkar er og hvað það hefur upp á að bjóða. Þjóðin veit, skilur og er samþykk landi sínu. En henni er stórlega misboðið því í landi hennar ríkir ruslatunnu-ríkisstjórn sem pólitískt og starfslega er algerlega hungurmorða. Ríkisstjórn Íslands fékk ekki örðu matar hjá Moody's í dag. Junk-Food er því áfram það eina sem er á matseðli þessarar ruslatunnu-ríkisstjórnar Íslands. Það eina sem hún nærist á.

Ríkisstjórn Íslands hefur hér með verið send í ruslflokk. Hún skilur ekki neitt. Hún getur ekki neitt og er ekki neitt. Ríkisstjórnin er í ruslflokki ásamt hluta Sjálfstæðisflokksins. Þetta rusl vill þjóðin losna við. Við viljum kosningar, kraft og hagvöxt. Við viljum ekki 100 ára ESB atvinnuleysi á Íslandi og ESB-núllvöxt áratugum saman. Farið frá. Farið strax! Farið!

Þakkir sendar til Bessastaða. Og nú er það "political and economic chaos, according to" Johanna Sigurdardottir


mbl.is Óbreytt mat hjá Moody's
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Bíð bara eftir því hvað Þórófur Máttíasson segir nú.

Rauða Ljónið, 20.4.2011 kl. 20:41

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég er að láta sauma hauspoka handa Þórólfi greyinu.  Maður þyrfti raunar að senda út eins og tvær tylftir á liðið.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.4.2011 kl. 21:02

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þessi Þórólfur er nú bara vandræðalegur.

En matsfyrirtækin eru í ruslflokki - bofs.blog.is

Guðmundur Ásgeirsson, 20.4.2011 kl. 22:28

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þetta er rökrétt útkom en skv. frétt Mbl. sl. viku lækkaði skuldatryggingaálag Ísland í 216 punkta, 2. punktum fyrir ofan CDS Spánar, dagana eftir "Nei".

Neikvæðar horfur - þ.e. einnig rökrétt, meðan hagkerfið er enn í frosti, en ég bendi þar á mína nýjustu umfjöllun: Efnahagsstaðan á þessu ári er mjög viðkvæm! Það jákvæðasta sem ég get sagt um gang mála skv. spá Seðlabanka!

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 21.4.2011 kl. 12:46

5 identicon

Stjórnmálaumræða í hæsta gæðaflokki :ruslatunnu-ríkisstjórn-hungurmorða-ruslatunnu-ríkisstjórnar Íslands-sauma hauspoka handa Þórólfi greyinu.--Ríkisstjórnin er í ruslflokki --Þetta rusl vill þjóðin losna við---

hrafnafloki (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband