Leita í fréttum mbl.is

Plan B að fæðast sem ríkisstjórnar gjörningur dagsins

Kláðasveit lúsahers ríkisstjórnarinnar setti í dag á svið burtflogna björgunarþyrlu og blés svo upp loftknúinn seðlabankastjóra Íslands sem - alltaf eins og nývaknaður - æddi hina löngu leið í símann og spýtti þar loks út úr sér upplýsingum um það sem Davíð Oddsson sagði okkur öllum í beinni útsendingu - en bara fyrir rétt rúmlega tveimur árum síðan - að yrði staðan sem hann Már Guðmundsson byggi að í Seðlabankanum í dag. Bætt staða og minni áhætta þjóðarbúsins þegar bankarnir væru likvíderaðir út úr þjóðarhagnum. Og skuldatryggingaálagið á ríkissjóð nú þegar komið niður í 230 punkta. Meira en þrisvar sinnum lægra en á ríkissjóði Portúgals og Írlands; en sem Már endilega vil gangast í ábyrgð fyrir með órjúfanlegri aðild Íslands að sam-gjaldþroti evrusvaðsins.

Út úr flæðarmáli munnvatns seðlabankastjórans mátti heyra orðin sullast út í gegnum landsíma símtal hans við lánshæfnismatsfyrirtæki nokkur, og sem hann sagðist hafa verið í nánu sambandsleysi við í stanslaust rúmlega tvö ár. Samtals og uppgert eru þetta þá aðeins tuttugu og fjórir rúmliggjandi upplýsingamánuðir um B-aðgerðaráætlun bé-ríkisstjórnar Íslands. Enda ekki við öðru að búast á heimili þar sem lifað er hinu pólitíska lífi frá einum deginum til annars. 

Eins og við öll vitum, er dagurinn í dag það eina sem við alltaf höfum. Allt hitt er runnið vatn í góðu veðri til sjávar en sem til einskis var nýtt og engum var né verður nokkurn tíma til gagns. Gott var nú blessað veðrið, en engum til gagns.
 
En heiðrinum er þó alltaf hægt að bæta á sig, daglega.
 
Sjálfur hefði ég bara sent af stað spólu með viðtalinu við Davíð Oddsson. Það hefði ekki þurft að kosta svo mikið og jafnvel hefði mátt spara hraðpóstburðargjöld og notast við flöskupóst. Tvö ár í óupplýstri skelfingu er langur tími fyrir þjóðina.
 
Atburður gærkveldsins 
 
Hrossagaukurinn er kominn! Og er strax við komuna til landsins, að himnum ofan, byrjaður að þeysa um loftin og sýna og spila listir sínar. Þrátt fyrir kulda, storm og él. Þvílíkur kraftur og seigla. Hrossagaukurinn! Vorið er að koma.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég er að hugsa um að skrifa matsfyrirtækjunum og spyrja þau hvort það sé virkilega tilfellið að þau hinkri með álit sitt að beiðni bankastóra.  Hætti jafnvel við ef menn biðja vel.

Ég held að þetta sé það örvæntingarfyllsta af öllu yfirklóri Más sem stendur nú másandi með berann rassinn upp í vindinn.

Þeir hafa kannski líka skipað evrópusambandinu að láta neiið ekki á sig fá og krafist þess að lánavilyrði til Búðarhálsvirkjunnar yrði ekki dregið til baka og í raun stoppað með símtölum allar fuglahræðurnar sem þau voru búin að smíða hér í aðdragandanum.

Sagði einhver Dario Fo?

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 21:59

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég er að hugsa um að skrifa matsfyrirtækjunum og spyrja þau hvort það sé virkilega tilfellið að þau hinkri með álit sitt að beiðni bankastóra.  Hætti jafnvel við ef menn biðja vel.

Já en minn kæri Jón Steinar, hér er um seðlabankastjóra Jóhönnu að ræða. Rauður dregill í allar áttir. Himnar opnast.

Gunnar Rögnvaldsson, 11.4.2011 kl. 22:06

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Auðvitað...hvernig læt ég..

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 23:04

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það skemmtilega við þetta er hvernig íslensku ríkisstjórninn virðist í hrakförum sínum ætla að takast að klúðra, ekki bara fyrir sjálfri sér, heldur er trúverðugleiki matsfyrirtækja núna að fjara út, sem og ýmissa valdastofnana innan Evrópukolkrabbans.

Ísland: stór(hættuleg)asta land í heimi!

P.S. Var einhver að tala um þyrnikórónu?

Guðmundur Ásgeirsson, 13.4.2011 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband