Leita í fréttum mbl.is

Lánshæfiseinkunn Japans lækkuð: Mynd af sömu svörtu framtíð og bíður Evrópusambandsins

Þar kom að því
 
Morgunblaðið skrifar; 
 
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor´s hefur lækkað lánshæfismat japanska ríkisins um einn flokk, úr AA í AA-. Segir fyrirtækið, að ástæðan sé miklar skuldir ríkissjóðs Japans. Fram kemur í umfjöllun S&P að skuldahlutfalla Japans sé þegar eitt hið hæsta í heimi og skuldirnar muni aukast enn næstu 10-15 árin.
 
 
Mannfjöldaspá Japans 
Mynd af svartri framtíð. Lífið eftir japönsku 
 
Mannfjöldaspá fyrir Japanska hagkerfið næstu 95 árin. Þessi spá jafngildir því að Íslendingar allir yrðu aðeins um 100.000 talsins eftir 95 ár. Þegar faðir minn góði og nú sálugi fæddist árið 1921 voru Íslendingar um það bil 94.000 talsins. Þetta var fyrir aðeins 89 árum. Þegar ég fæddist árið 1956, eða 35 árum seinna, voru Íslendingar orðnir 159.000 talsins. Í dag eru þeir um 315.000. Þetta kallar maður framfarir og að eiga bjarta framtíð.
 
Evrópusambandið er eins og jafnvel enn verr sett
 
Það leiðinlega við þessa japönsku mynd er eðlilega það, að fyrir Japani þýðir þetta endalok velmegunar. En svona verður ástandið í flestum ríkjum Evrópusambandsins einnig. Ömurlegt framtíð er í vændum fyrir flest ríki ESB. Það er ógerningur að snúa þessari þróun við nema á hundruðum ára. Þannig virkar útsæðislíkan bænda (e. farmers seed model) fyrir Homo Sapiens. Að finna eina konu á frjósemisaldri á þessari mynd mun kosta mikla leit. Ef þær geta flúið svona samfélag þá munu þær örugglega gera það. Þær munu að minnsta kosti ekki vilja fæða börn inn í svona ruglað samfélag. Þær fara í verkfall. Japanskar konur fóru í verkfall. Nútíminn kom aldrei til þeirra; Life After Japanese (uppfært: það er sennilega nauðsynlegt að taka það fram að þessi færsla er ekki 1. aprílgabb
 
Vísitala raunverðs húsnæðis frá 1. ársfj 1970 = 100  til 4. ársfj. 2008 Japan - Þýskaland - OECD lönd 
Mynd; raunverð húsnæðis í ÞÝS, JAP og OECD frá 1970
 
Þróun fasteignaverðs í öldrunarhagkerfum Evrópusambandsins á næstu 40 árum 
 
Svona mun þróun fasteignaverðs verða í Evrópusambandinu á næstu 40 árum ef marka má rannsóknir Bank for International Settlements (BIS) á síðasta ári:
 
BIS Demographic impact on housing
 
Lækkun á næstu 40 árum:
  • Portúgal: 85 prósent lækkun
  • Spánn: 75  prósent lækkun
  • Grikkland: 75 prósent lækkun
  • Þýskaland: 75 prósent lækkun
  • Ítalía: 70 prósent lækkun
  • Austurríki: 60 prósent lækkun
 
Athugið að hér er þróun fasteignaverðs í Austur-Evrópu ekki með í myndinni en þar verður ástandið ennþá skelfilegra en í gömlu kjarnalöndum Evrópusambandsins.
 
Hér er skýrslan frá BIS
 
1000 gjaldþrota verslunargatan í Japan 
Svona líta sumar verslunargötur úr í öldrunarhagkerfum. Myndin er frá bakhlið gjaldþrota verslunargötu í einu fremsta öldrunarhagkerfi heimsins; Japan - og er fengin að láni úr greininni: þúsund gjaldþrota verslunargatan.
 
Óðaöldrun (e. hyper ageing) hinna barnlausu samfélaga Þýskalands, allrar Suður-Evrópu, allrar Austur-Evrópu, Eystrasaltsríkja og Japan er ekkert grín. Hver vil fjárfesta í deyjandi eignum?

Úr þættinum dauði Evrópu í dr.dk 
Svona lítur niðurrif þriggja miljón þýskra íbúða út. Glæsileg þróun í hinu útflutningsháða öldrunarhagkerfi Þýskalands. Myndin er úr þættinum "dauði Evrópu" sem sýndur var í danska DR2 sjónvarpinu 2009. Hin eina óendurnýjanlega náttúruauðlind Evrópusambandsins er að deyja: fólkið í ESB. Mikið verða þingkosningar spennandi í svona samfélögum þar sem 70 prósent kjósenda verða komnir yfir sextugt. Um helmingur kjósenda í Þýskalandi eru orðnir sextugir nú þegar. 
 
Þýskaland; öldrun samfélagsins 
Þýskaland; mynd úr öldrunarhagkerfi (DR2)
 
Þýskaland; öldrun samfélagsins 2 
Þýskaland; mynd úr öldrunarhagkerfi (DR2)
 
Tengt efni

Fyrri færsla

mbl.is Lánshæfiseinkunn Japans lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Málið er að flest núvernadi  Meðlima Ríki EU hafi gengið í gegnum hagræðingar samruna ferli, mörg þeirra eru frá fornu fari undir samanburðar meðaltekjum á þegn í EU. Þá var mikið af kofum rifið og sjálfþurftargörðum í kring. Auðvitað lánuðu ríku Meðlima ríkin fyrir andlitsupplyftingunni og ég tel að skýri vel að raunvirði fasteigna fylgi verði á nýbyggingarkostnaði í þessum hjá nýhjálendum.  

Það kemur að skuldadögum fyrr en seinna. Góðmennt en fámennt. Gæði frekar en magn.  

Standard & Poor's (S&P) is a United States-based financial services company.

Þeir skaða ekki hagsmunni sinna húsbænda eða þeim sem þeir þjóna.  Mat er oftast byggt á samaburði og alls ekki hlutlaust. Allir vita að Dollar á fara upp gangvart evru á 5 ára tímabili og pundið líka aðeins minna.

USA fjárfestum er ráðlagt að stefna á Kína og Indland. Allir vita að Japan er halt undir EU.

Júlíus Björnsson, 27.1.2011 kl. 19:35

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þegar rauntekjur 80% vinnuafls þjóðar lækkar, þá segir reynsla að fasteignaverðið fer sömu leið. Þýskaland er engin undantekining. Enda verður vinnuaflið ódýrara með hverjum degi hjá þjóðinni.

Þjóð táknar á menntamáli þá sem skilja hvorn annan, hafa sama lesskilning.

Júlíus Björnsson, 27.1.2011 kl. 19:40

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ég held ég megi til með að deila þessari grein á facebook'inu....

Góð samantekt, jafnframt sorgleg en um leið óumflýjanleg...nema að varnargarðar innflytjenda verði með öllu brotnar burt...ef það er þá það sem ESB vill....

Haraldur Baldursson, 27.1.2011 kl. 20:57

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sama gerist hjá Rómversku þjóðinni. Öfugar varðandi fólksfækkun og fólks fjölgun borgar sig ekki til langfram.  Það hefur oft sýnt sig að séu sumar dýrategundur færar í annað umhverfi en þeim er genalega eðlislegt  dregur úr frjósemi eða hún hverfur.  Vélar eru löngu búnar að leysa vinnuaflið af hólmi.   "Labour" hefur líka merkt vandamál fyrir þjóðirnar [Dynasties] frá upphafi, áður vara hægt að grisja með stríðum, en neyðin kennir naktri konu að spinna.  Fátækrahverfin í EU virðast bara færast til eins og "frjálsa" farandvinnuaflið í EU. Það er til fullt af hryllegum myndum úr fæktrarhverfum fyrir daga EU, einmitt vegna miskiptingar og eða stétta tvískiptingar í flestum ríkjum meginlandsins. Ísland var alltaf best við sitt vinnuafl fram til siðskiptanna 1983 í samanburði.

Heilinn í mannskeppnunni hefur ekki þyngst um gramm síðustu 100.000 ár og góð rök eru fyrir því að ekkert nýtt sé undir sólunni og mannkynssaga sé sömu við sig og haldi áfram að endurtaka sig.

Reynslan eru einu rökin sem hægt er að treysta.  

EU vill vinnuaflsfækkun, fjöldi neytenda skilar ekki því sem honum var ætlað 1957.  GDP [EU] eftir kostnað er mælikvarði á yfirburði hjá rísa þjóðar líkömunum.

Júlíus Björnsson, 27.1.2011 kl. 21:49

5 Smámynd: Haraldur Baldursson

NY Times birtir þessa grein um landflótta japana, sem velja að slíta sér ekki út til að halda uppi fyrri kynsklóðum á röngum forsendum :
http://www.nytimes.com/2011/01/28/world/asia/28generation.html?_r=1&hp=&pagewanted=all

Haraldur Baldursson, 28.1.2011 kl. 08:33

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Unga fólkið er byrjað að flytja undan okur lífeyrissjóðakerfinu hér sem fjármagnar sig á fölskum jafngreiðslulánum. Langlífu og hraustu genin, forfeðranna sem drukku hrossa fitu, hákarlalýsi hér fyrr á öldum. Í staðin koma baun og grasætur.

Indjánar þóttu ónýtir hitanum. Nígueríumenn og Ganamenn eru með innbyggt vatnskælikerfi, og reyndar ég líka. 

USA er 1000 sinnum betra en EU. Enda flytja þeir ekki inn drasl frá EU eins og Ísland.

Júlíus Björnsson, 28.1.2011 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband