Leita í fréttum mbl.is

Er alltaf bankahrun á Möltu?

Atvinnuleysi: Malta - Ísland, 35 ár

35 ár í lífi Möltu og Íslands - atvinnuleysi

Smellið á myndina og smellið svo aftur til að stækka hana alveg 

Velmegun landa verður bara til á atvinnumarkaði þeirra

Myndin sýnir 35 ár úr lífi atvinnumarkaða tveggja landa, Möltu og Íslands. Atvinna og atvinnuþátttaka er undirstaða þjóðfélaga og alls efnahags þeirra. Atvinna og atvinnustig býr til greiðslugetu og lánstraust ríkissjóðs - og alls almennings. Allt veltur á því að hjól atvinnulífsins snúist, því þar verður öll velmegun þjóðfélagsins til. Hinn opinberi geiri getur ekki búið til velmegun. En stundum reynir hann þó að búa til velferð, en það krefst velmegunar. Hinn opinberi geiri lifir á þeirri velmegun sem atvinnulífið býr til. Velmegun er allt annað en velferð. Þetta er mikilvægt að vita.

Malta gekk í ESB árið 2004. Því fór sem fór

Fyrri færsla

Hótel Evrusvæði krefst aflimunar og steglu. Bara járnrúm í boði 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé ekki betur en að atvinnuleysi á Möltu hafi í maí 2004 verið 7,4%. Í maí gekk Malta einmitt í ESB. Síðan hefur atvinnuleysi aldrei farið yfir 7,4%, heldur frekar niður á við og er samkvæmt nýjustu tölum 6,5%. Þetta eru tölurnar sem þú vísar sjálfur í. Áttu við að það hafi verið atvinnuskapandi fyrir Möltu að ganga í ESB? ;)

X (IP-tala skráð) 28.10.2010 kl. 22:44

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Fram til 1994 þurfti Íslendingar samburði við liðið á meginlandinu sér í lagi suðurhlutanum, að vinna mikið fleiri klukkutíma á starfsævinni en það. Þegar ég var að ferðast þarna var það hagsmuna mál að hafa eins marga í vinnu og hægt var og fór liðið sér ansi hægt.  Ef hér myndu allir í dag vinna jafnmarga klukku tíma á starfsævinni og gildir í EU almennt, þá þyrfti að fjölga vinnukrafti á Íslandi að mínu mati. 

Ísland er í flestu ekki samburðarhæft við  önnur ríki EU. 

Ísland því miður er búið að breytast í þjóðalíkama eða maurabú þar sem einstaklingarnir skipta engu máli í augum þeirra  sem komast til óeðlilega of mikilla áhrifa.

Júlíus Björnsson, 28.10.2010 kl. 22:46

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur

X:  

Ég sé ekki betur en að atvinnuleysi á Möltu hafi í maí 2004 verið 7,4%.

Það er ekki nóg að sjá betur X. Best er að sjá skýrt.

1) Fimm árum eftir að Malta gekk í ESB finnst aðeins 37 prósentum íbúa Möltu að hag þeirra sé betur borgið miðað við þegar Malta stóð fyrir utan ESB.

2) Þrátt fyrir alþjóðlega uppsveiflu frá 2002-2008 þá batnaði atvinnuleysi ekki á Möltu. 

3) Inngagna Möltu í ESB virðist hins vegar hafa innsiglað hrikalega hátt atvinnuleysi á Möltu til langframa, eins og gerst hefur í Finnlandi og flestum þeim löndum sem taka upp evru eða ganga í ESB.

4) Ef það er svona að ganga í ESB þá þarf Ísland ekki á því að halda. Samkvæmt atvinnuástandi á Möltu núna þá erum við nú þegar í ESB. Það er svona sem það virkar, þ.e.a.s. eins og samfélagsleg eyðni. ESB er eins konar AIDS fyrir þjóðir.  

5) En Ísland er ekki í ESB og því gerir spá AGS ráð fyrir helmingi lægra atvinnuleysi á Íslandi en á Möltu á næstu árum. Þökk sé fullveldi okkar og sérstaklega fullveldi okkar í mynt- og peningamálum - og áframhaldandi fullveldi okkar yfir landhelgi og auðæfum. 

Gunnar Rögnvaldsson, 28.10.2010 kl. 23:30

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í stjórnaskrá EU er ákvæði um að atvinnuleysi verði sem jafnast í aðildarríkjunum. Segir ekkert um hversu mikið eða lítið.  Eina sem má skilja er að ef ríki er með svipað atvinnuleysi og flest önnur  þá sé það í anda EU stjórnaskrár.

Sem skýrir fyrir mér breytt viðhorf á Íslandi til  atvinnuleysis. Atvinnuleytandi er ódýrasti starfsmaður hjá ríki og sveitarfélögum.

Júlíus Björnsson, 29.10.2010 kl. 03:09

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég var að vinna á Möltu upp í kring um 1978 en þá var Kínamaður með klær þar sem skapaði einhver störf en konur máttu alls ekki vinna svo kannski hefir atvinnuleysið verið miklu meira  hefðu konur verið reiknaðar sem starfskraftur. Við erum bara í djúpum skít vegna fals og ólöglegrar umsóknar inn í ESB. Sjá blogg mín í dag.  

Valdimar Samúelsson, 29.10.2010 kl. 21:23

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Valdimar. 

Atvinnuþátttaka kvenna á Möltu er aðeins 37,7 prósent

Á Íslandi er þessi tala 78,2 prósent og hæst í hinum vestræna heimi. Atvinnuþátttaka kvenna á Íslandi er því meira en tvöfalt hærri en á Möltu. 

Samfélög þar sem konur eiga ekki góða möguleika verða alltaf fátæk og vanþróuð samfélög illa búsetuhæf fyrir þjóðir sem vilja eiga framtíðina fyrir sér.  

Konur á Möltu eignast helst ekki börn því farmtíðarhorfur eru þar svo slæmar fyrir einmitt konur. Þær vinna helst ekki því atvinnumarkaður er svo slæmur og samfélagið gelt.

Þetta passar ágætlega við flest lönd Evrópusambandsins: þar eru konur geymdar inni í skápum afdalakarlkerlinga Evrópusambandsins. Hver vill fæða börn inn í deyjandi samfélög karlkerlinga Evrópusambandsins?  

En þetta er jú draumur hins sósíaldemókrataíska metrópólítanmanns Evrópusambandsins.

Gunnar Rögnvaldsson, 29.10.2010 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband