Leita í fréttum mbl.is

ESB-aðildin kostaði Danmörku 220 miljarða á síðasta ári - og 55.000 atvinnutækifæri á næstunni

Ditte Staun
Mesti og besti sparnaður sem danska samfélagið gæti gert væri að segja sig úr Evrópusambandinu. Þetta segir Ditte Staun hjá þjóðarhreyfingu Dana gegn ESB-aðild.

Nú er komið í ljós að ESB-aðildin kostaði Danmörku um 10,6 miljarða danskra króna á síðasta ári. Tölurnar eru fengnar úr þjóðhagsreikningum dönsku hagstofunnar sem sýna að Danmörk greiðir Brussel tæpa 20 miljarða DKK fyrir að fá 9,6 miljarða DKK til baka. Nettó tap Danmerkur var því yfir 10 miljarðar DKK á síðasta ári. 

Að venju trúa Danir ekki á skjalafalsaða ársreikninga Evrópusambandsins og leita því svara hjá dönsku hagstofunni. En ársreikningar Evrópusambandsins hafa verið skjalafalsaðir á annan áratug svo ekki komist upp um spillingu 120.000 embættismanna sambandsins, nær og fjær.

Ekstrabladet skoðanakönnun 29-9-2010
Danska sorpritið Ekstra Bladet, sem þó þykir margfalt vandaðra að innihaldi og virðingu en íslenska sorpritið Fréttablaðið, hélt skoðanakönnun um málið. Þar vilja 58 prósent kjósenda að Danmörk segi sig úr Evrópusambandinu.

Ditte Staun og þjóðarhreyfing Dana gegn ESB-aðild hvetur dönsku ríkisstjórnina til að losa Danmörku úr viðjum Evrópusambandsins. Það myndi ekki skaða og heldur ekki utanríkisviðskipti Danmerkur. Bæði Sviss og Noregur sanna það.

Spareplaner truer over 55.000 danske job
Rannsóknar- og greiningarstofnun samtaka verkalýðshreyfinga í Danmörku (AE) segir að Danmörk muni missa 55.000 atvinnutækifæri á altari evrubjörgunartilrauna Evrópusambandsins. En á næstu árum á að taka efnahag ESB landa hers höndum svo bjarga megi myntinni evru. 

ASÍ á Íslandi hefur strax pantað nýjan stól til að stinga þessari skýrslu AE undir. Stólasafn ASÍ fyllir nú flestar byggingar samtakanna. Undir hverjum stól liggur skýrsla sem sýnir fram á hversu illilega meðlimir þeir sem borga laun stjórnar sambandsins myndu líða fyrir að ganga í ESB.

Olle Rehn í búningi
Skýrsla AE rekur hvað það kostar danska launþega að danska ríkisstjórnin þarf að skríða í ESB-duftið með ríkisfjármál konungsríkisins, þ.e.a.s. skera niður til að fullnægja örþrifaráðslegum tilraunum myntbjörgunarsveita sambandsins. Allur efnahagur ESB-landa mun blæða fyrir þessa mynt og þáttur danska ríkisins verður að ganga í takt, því annars fá danskir embættismenn ekki gulblátt Olli-Rehn-hálsbindi og bláa gulstjörnusokka til að leika sér í niðri í Brussel. Klæðnaður sem engin sæmilega óbrengluð manneskja án þrælslundar myndi láta sjá sig í. Það eru þjónustugreinarnar sem fyrst og fremst þurfa að blæða þessum 55 þúsund atvinnutækifærum í Danmörku.
 
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Að venju trúa Danir ekki á skjalafalsaða ársreikninga Evrópusambandsins.

Það er löngu viðkennt að efnahagsleg leppríki og nýlendur um langan aldur eru sérfræðingar í skjalafalsi gagnvart erlendri miðstýringu, réttlæting byggist oftar en ekki á ættjarðar ást falsaranna.  Nú er EU samsett úr misjöfnum Meðlima-Ríkjum hvað varðar hefðir og hlýtur að litast af því.

Hinsvegar er spurning hvort sumir hér vilja inn í EU til að viðhalda meintu falsi á Íslandi, og nota svo Brussel eins og AGS sem blóraböggul fyrir almenning sem finnst hann beittur sannalegum rangindum. 

Júlíus Björnsson, 4.10.2010 kl. 03:45

2 identicon

Þjóðahreyfing dana gegn ESB aðild eru öfgafull samtök sem jaða við að vera sértrúarsöfnuður, þessi samtök hafa sárafáa meðlimi.
Danir flytja alveg gríðarlega mikið af matvælum út til ESB, auk þess sem að heilu vöruhúsin fyrir Evrópu eru staðsett í Danmörku. Ef ekki væri nema vegna ESB þá myndi öll þessi starfsemi leggjast af og öll sú þjónusta sem þeim fylgir leggjast af og atvinnuleysi myndi aukast alveg gríðarlega.

Það sem þessi samtök segja er ekki heilagur sannleikur og þau sjá bara eina hlið á málunum.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 09:13

3 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Það er nokkuð til sem heitir debet og kredit. Sá sem notar aðeins annan hlutann er að falsa reikninga og þú fellur heldur betur í þá gryfju þegar þú endurómar rugl úr dönskum öfgasamtökum sem hafa örfylgi. Gunnar, er það ekki rétt hjá mér að þú búir í EBS ríkinu Danmörku?

Satt besta að segja ertu fyrir löngu orðinn hlægilegur í þínu öfgarausi þar sem rangfærslur og blekkingar eru aðalmálið.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 4.10.2010 kl. 09:25

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Halldór: áður en þú stimplar Folkebevægselsen mod EU fyrir öfgasamtök ættir þú að kynna þér 35 ára sögu þessarar þverpólitísku hreyfingar sem stofnuð var í Odense árið 1972. Meðlimir eru almenningur, verkalýðssamtök og önnur samtök. Hreyfingin berst fyrir úrsögn Danmerkur úr ESB, gegn verðandi stórríki ESB, gegn forseta ESB yfir Danmörku og gegn yfirríkislegri stjórnarskrá ESB yfir Danmörku, sem einginn í Danmörku fékk nokkuð um að segja.

Eitt af baráttumálunum er varðveiting dansks landbúnaðar. En hann er nú að þrotum kominn. Danskur matvælaiðnaður er flúinn frá Danmörku því fyrir neðan landamæri Danmerkur er land sem heitir Þýskaland og sem hefur stundað innvortis gengisfellingu í læstu gengisfyrirkomulagi við Danmörku í samfleytt 12 ár - sem þýðir að þar þarf aðeins og greiða starfsfólki í matvælaiðnaði helming þeirra launa sem þarf að borga starfsfólki í samsvarandi dönskum fyrirtækjum. Því er þessi iðnaður flúinn úr landi. 

Eftir 35 ár í ESB eru matvæli í Danmörku eru orðin þau dýrustu í öllu ESB. Þetta átti ekki að geta gerst. Um 65% af tekjum bænda koma frá skattgreiðendum og fjórungur danskra bænda stefnir í gjaldþrot á næstu fjórum árum. Hver bóndi í Danmörku skuldar að meðaltali 650 milljónir ISK, búreksturinn gengur svona hörmulega í faðmi ESB. Danskur landbúnaður er sem sagt á hausnum og er að deyja eftir 35 ár í EB, EF, EEC og ESB.

Það er ekki öfgafullt að vilja berjast fyrir samfélagi sínu. Stór hluti Dana er algerlega andsnúinn ESB, jafnvel eftir þessi 35 ár í sælunni. Enginn Dani var spurður að því hvort hann vildi ganga í ESB. ESB var laumað inn á dönsku þjóðina. Þjóðin gékk á sínum tíma í EF.

Hérna getur þú lesið um 35 ára sögu Folkebevægelsen: 30 år i folkestyrets tjeneste

Sigurður Grétar: finndu þér vinsamlegast nýja tuggu

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2010 kl. 10:27

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nei Sigurður Grétar. Ég bý ekki í Danmörku. En ég gerði það hins vegar hin síðustu 25 ár.  

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2010 kl. 11:20

6 identicon

Laun í Danmörku eru mjög há og það er Dönskum stjórnvöldum að kenna með sinni ofurskattlagningu á alla hluti, það skekkir samkeppnisstöðu landsins, ef það væri ekki í ESB myndi vera enn erfiðara fyrir fyrirtæki að vera með starfsemi í DK þar sem vörugjöld myndu einnig bætast ofan á. 
Dæmi um hvernig EU kemur bændum til góða er Arla og Cocio sem framleiða mikið af mjölkurvörum úr danskri mjólk frá dönskum bændum, þessar vörur eru seldar um alla Evrópu.

Laun í Þýskalandi eru á svipuðu reiki og annarsstaðar í Evrópu. Sjálfur bý ég í Danmörku og fer reglulega yfir til Þýskalands að versla, það sem ég kaupi í þýskalandi er m.a. danskar landbúnaðarvörur, danskt gos, danskur bjór og danskt sælgæti sem er helmingi ódýrara þarna megin heldur en Danmerkur megin. 
Afhverju er verðlag svona hátt í DK? ástæðurnar eru t.d. sykurskattur, 70% tekjuskattur, 25% vsk, 180% vörugjöld á bíla o.s.frv, allt þetta veldur því að fólk þarf hærri laun til að lifa. Þetta er sjálfskaparvíti sem Danir eru búnir að koma sér í og hefur ekkert með ESB að gera.
Það er ekki rétt að meirihluti dana vilji fara út ESB, það er bölvað kjaftæði sem er samið af öfgasöfnuðinum Folkebevægselsen

HG (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 11:32

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Innlegg þitt segir margt Halldór.  

Hvert eiga Þjóðverjar þá að fara til að versla Halldór? Til Rúmeníu? Og hvert eiga Rúmenar að fara til að versla Halldór? Vilt þú vera á þýskum launum? Nei, það vilt þú ekki. En þú vilt hinsvegar kaupa vörunar á láglaunasvæði þeirra. 

Þú vilt sem sagt sitja í danska velferðarsamfélaginu og versla ódýrt hjá þýskum sem búa í landi með engum lágmarkslaunum og á ömurlegum kjörum. Um tvær milljón þýskra fjölskyldna í fullri atvinnu þurfa að fá félagsmálahjálp því launin í Þýskalandi eru svo hrikalega lág. Af hverju flytur þú ekki bara til Þýskalands? Væri það ekki auðveldara. Þá fengir þú líka evrur í vasann.  

Það verð sem danskir bændur fá fyrir mjólk sína endurspeglar það sem þú segir. Þú vilt ekki borga danskt verð. Því kaupir þú mjólkina þeirra í Þýskalandi. 

Það er einmitt þessa vegna sem Suður-Jótland, Vestur-Jótland, Norður-Jótland og Suður-Sjáland er að breytast í samfélagslega auðn með miklu atvinnuleysi og niðurbrjótandi fasteignaverði því hið mikilvæga samfélagslega hlutverk sem danskur landbúnaður hefur haft í Danmörku í gegnum árhundruð er að hverfa því landbúnaður þjóðarinnar er að deyja eftir öll árin í Evrópusambandinu. 

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2010 kl. 11:56

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Af hverju heldur þú Halldór að skattar séu svona háir í Danmörku?? 

Jú -u800 þúsund Danir gera ekki neitt. Þessir fá ekki atvinnu og mörgum þeirra var hent út af vinnumarkaði á undaförnum 30 atvinnuleysisárum. Svo eru þar líka ein milljón ellilífeyrisþegar ofaní þessa 800 þúsund sem gera ekki neitt. Svo koma blessuð börnin sem svo allt of fáir vilja eignast í þessu norræna velferðarsamfélagi, svo koma ofaní þetta allir námsmenn. Hverjir vinna þá fyrir danska samfélaginu? Jú, um það bil 1,3 milljón manns af 5,4 miljón þegnum danska ríkisins. Allir sjá að þetta getur ekki gengið upp. En það er bara ekki hægt að komast aftur út úr þessu. Að vera í ESB er svona. Atvinnuleysi áratugum saman. 

Hagvöxtur í Danmörku var sá fimmti lélegasti í OECD á síðustu 10 árum. Á næstu 15 árum verður hann sá næst lélegasti segir OECD. 

Danmörk hrapar neðar og neðar á skala OECD yfir ríkustu þjóðir heimsins. Mikið neðar og hratt. 

Stýrivextir, verðbólga og atvinnuleysi í Danmörku 1978-2008

Á síðustu 33 árum hefur atvinnuleysi í Danmörku bara farið undir 5 prósent í fjögur til fimm ár af þrjátíu og þremur árum. Þetta þýðir að atvinnuástand hefur verðir hörmulegt næstum öll síðustu 33 árin. Sama eða svipað er að segja um Svíþjóð og Finnland. Staðan er hinsvegar mörgum sinnum verri í Þýsklandi og hefur verið það í mörg mörg ár. Það er þess vegna sem laun eru svona ömurleg í Þýskalandi. 

Að vera í Evrópusambandinu þýðir óhjákvæmilega hátt atvinnuleysi. Þjóðir verða fátækar á því að hafa hátt atvinnuleysi áratugum saman. Svona er að vera í ESB.   

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2010 kl. 12:15

9 identicon

Ekki nóg med þad Gunnar, heldur erum vid ræflarnir sem erum búin ad búa hér og starfa í Danmørk til fjølda ára, á jafnt á vid dani sem og adra frá hinum nordurløndunum, okkur er hent útaf okkar vinnustødum til ad rýma fyrir td pólverjum og þjódverjum, jú sko þeir hafa engan uppsagnafrest. eru á lægri launum og borga nánast engan skatt, þetta eru "blessadar" ESB reglurnar. VIKAR umbodsskrifstofurnar skjóta upp kollinum eins og gorkúlur, en í gegn um þær kemur þetta fólk. Útródrabátarnir liggja meira og minna bundnir vid bryggju þvi þad er ekki eftir neinu ad fara nema svokølludum skíttfisk sem ekkert verd fæst fyrir þøkk sé fiskveidistefnu ESB, margir bátar og vinnustadir skarta ESB merkinu med hønd í midju sem vísir þumalputtan nidur og texta undir sem segir FISHERMANS GRAVE. Ég veit ad þad er logandi heift í fólki út í ESB. Fyrir okkur hin sem veltum vid hverjum steini til ad finna vinnu sem engin er því hún er jú frátekin fyrir VIKARANA, erum vid upp á nád og miskun dagpeninga frá okkar verkalýdsféløgum, og þeir peningarnir gera vart meira en ad halda okkur gangandi frá degi til dags. Adspurdir hversvegna verkalýdsféløgin reyni ekki ed verja okkar réttindi segja þeir hendur sínar múlbundna vegna ESB reglna.

Fyrir okkur dagpeninga þega er bara ad þreyja þorran í tvø ár (var nýverid stytt úr fjórum í tvø), og sídan ad selja ofan af okkur eignirnar.

þetta er ófreskjan sem  sumir Íslendinga vilja kalla yfir sig SVEIATTAN. 

Arnfinnur Gudmundsson (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 18:39

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Arnfinnur.

Hér á hugtakið "social dumping" við í allra hæsta máta. Það er einmitt það sem fer þarna fram. Verkalýðsfélögin dregin í réttinn og áratuga kjarabarátta þeirra send til. . tja . . þú veist hvert 

Kveðjur til þín í gömlu DK.

Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2010 kl. 19:37

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

EU reglverkið gerir ekki fýsilegt að búa út á landi í hlutfallslega miklu minna plássi en Höfuðborgarsvæðið. Lítum okkur nær hvað er Íslend annað en lítið pláss í augum Íbúa Berlín, London og París. Afgangsstærð sem skiptir engu máli  ef hægt er flytja  tekjurnar beint þangað sem almennir fjölda hagsmunir liggja.

Ég þekki mína EU arfleið og  Íslendingar eru fiski og bænda lýður norður í Ballarhafi og ekkert merkilegri en íbúar Kanarý eða Kúpu eða Haíti, eða Kýpur eða Möltu eða Sikiley.  Þeir sem ekki geta byggt  hús fyrir almenn þegna sína án þess að fá lánað  frá útlöndu eru aumingjar. Ríkistjórn sem fitar sig á skattlagningu dráttar vaxta og alþjóllegar ólöglegar jafngreiðslu veðskuldarlána.  Í USA jafngildir 21 milljóna jafngreiðslu verðtryggð veðskuld til 30 ára 3,2% verðbógu á ári og 10 millu lánsútborgun.

Glæpasjóðurinn  hér miðað við sömu verðbólgu  gefur upp 31 millu fyrir 10 í sömu verðbólgu. 

Júlíus Björnsson, 4.10.2010 kl. 19:48

12 Smámynd: Haraldur Hansson

Undanfarinn áratug hefur kostnaður skandinavísku ríkjanna verið um €150 á hvert mannsbarn; þ.e. það sem greitt er til Brussel umfram það sem fæst til baka.

Sami kostnaður myndi þýða um 7.400 milljónir á ári fyrir Íslendinga fyrir að vera með í klúbbnum. Þessar nýju dönsku tölur sýna um €265 á hvert mannsbarn, sem er ansi mikil hækkun.

Hagræðið af þátttöku í ESB samstarfinu er ekki nema 1/3 af kostnaðinum við batteríkið, samkvæmt eigin athugun framkvæmdastjórnar ESB. Svo maður spyr, hvaða efnahagslegu bjargráð ætla Össur og kratarnir hans að stækja til Brussel?

(Gott innskot hjá Arnfinni, þetta með dönsku útgerðina, þumalinn niður og fishermans grave)

Haraldur Hansson, 5.10.2010 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband