Leita í fréttum mbl.is

Þýskur útflutningur fellur

Öldrun Þýskalands - kjarni evruEins og þeir vita sem hafa fylgst með hnignun Þýskalands hin síðustu 25 árin, þá standa málin þannig til í þessu stærsta hagkerfi Evrópusambandsins að Þýskaland er orðið varanlega ósjálfráða hagkerfi. Þýskaland er orðið ófært um að hafa áhrif á eigin efnahag því öldrun þegna samfélagsins er svo mikil og hröð. Þetta þýðir að þýska öldrunarhagkerfið verður að stóla algerlega á eftirspurn frá útlöndum og þá helst frá löndum utan evrusvæðis. Þýska þjóðin er sjálf orðin of gömul og veikburða til að geta skapað nauðsynlega eftirspurn innvortis í sínu eigin hagkerfi.
 
Landið og efnahagur þess þarf því að sitja, standa og falla samkvæmt ákvörðunum sem teknar eru í öðrum löndum heimsins, utan Evrópusambandsins. Þýskaland er orðið það sem kallað er "útflutningsháð öldrunarhagkerfi", ófært um að hafa áhrif á sín eigin efnahagslegu örlög. Þessu verður ekki breytt næstu mörg hundruð árin, því þannig virka aldurspýramídar sem snúa öfugt. Flestar mikilvægar efnahaglegar ákvarðanir Þýskalands eru teknar í Bandaríkjunum og nýmarkaðslöndum heimsins. Því miður er stærsti hluti Evrópusambandsins að verða eins og Þýskaland; öldrunarhagkerfi án innlenskrar eftirspurnar. Hægfara deyjandi samfélög.
 
Útflutningur frá Þýskalandi júlí 2010
Hagstofa Þýskalands sagði í morgun að útflutningur Þýskalands hefði dregist saman í júlí miðað við júní um 1,5% og innflutningur um 2,2%. Hrun útflutnings Þýskalands hófst um leið og umheimurinn fór í kreppu þ.e á öðrum ársfjórðungi ársins 2008 og féll stanslaust og hrikalega næstu 16-18 mánuðina, eða fram til janúar á þessu ári, þegar hann loksins náði botni er umheimurinn skipaði svo fyrir og fór að kaupa eitthvað aftur af vörum gamla heimsins í Þýskalandi. Í síðustu þingkosningum var helmingur þýskra kjósenda orðinn sextugur og eldri. Ritvélaiðnaður öldrunarhagkerfis Þýskalands, bílaiðnaðurinn, á ekki góða daga í vændum í þessu öldrunarsamfélagi. 

Raunverð húsnæðis :: graf frá Seðlabanka Íslands :: Peningamál 2/7 2008
Þó svo að Þýskaland hefði ekki upplifað neina fasteignabólu í hagkerfi sínu þá féll landsframleiðsla landsins eins og steinn um 4,5% á árinu 2009. Þetta var mesta fall meiriháttar hagkerfis í heiminum. Auðvitað var engin húsnæðisbóla í gangi í Þýskalandi þegar heimskreppan skall á; hvernig ætti húsnæðisbóla að geta skapast á 80 milljón manna elliheimili? Reyndar hafði raunverð húsnæðis í Þýskalandi fallið um 20% frá aldamótum (sjá mynd Seðlabanka Íslands). Svo ekki var það fasteignabóla sem sökkti hagkerfi Þýskalands: það var umheimurinn. Eftirspurnin frá umheiminum fór í sumarfrí og því lokaði þýska elliheimilið strax. Þýskaland er oft kallað vélin í evrusvæðinu. Í nýrri skýrslu spáir Bank for International Settlements (BIS) því að fasteignaverð muni falla um 75% í Þýskalandi á næstu 40 árum.
 
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það var vitað að 3. ársfj. yrði ekki eins góður og 2. ársfj. þ.s. hægði á Bandar. verulega á 2. fjórðungi á sama tíma og slíkt hið sama gerðist einnig í Japan og Kína. Að vísu er hagvöxtur enn, hraður í Kína. Ekki eins hraður þó og hann var á undan.

Síðan, hafandi í huga að 40% útfl. Þýskal. fer til Evrópu, þá má reikna með að niðurskurðarplön hinna ímsu ríkisstj. muni minnka eftirspurn á næsta ári eftir þýskum vörum.

En eins og við tveir vitum, hafa S-Evrópu þjóðirnar ekki val um annað, en þ.s. kallað er "deflationary spiral of adjustment" þ.s. klárt er að þjóðverjar eru ekki á leiðinni að hækka laun og verðlag hjá sér. Svo eina leiðin er að hinar þjóðirnar jafni sig niður.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.9.2010 kl. 22:52

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Du mener vel, at den "minnkar"? Jeg "sletter" også nogle gange dansk.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.9.2010 kl. 01:17

3 identicon

Það er allt í góðum málum í Þýskalandi.  En það er auðvitað þannig að þeir sem ekki búa í landinu sjá það ekki.

Þú getur sagt þeim hvað sem er;)

Frábært þetta blogg.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 07:12

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið

Nei Einar Björn, laun Þjóðverja verða ekki hækkuð aftur. Þetta er eitt af einkennunum á vinnumarkaði öldrunarhagkerfa. Þýskaland býður uppá og hefur boðið upp á samfleytt 30 ára massaatvinnuleysi, sultarlaun og fátækt.

Frá 2005 hafa um 300.000 þýskir launþegar í fullri vinnu öðlast rétt á bæjarhjálp því laun þeirra eru svo hrikalega lág. Full staða og full laun eru það illa launuð að bæta þarf þau upp með bæjarhjálp. Enda hefur fátækt stóraukist í Þýskalandi á undanförnum 10 árum.

Um það bil þrjár miljónir Þjóðverja hafa laun sem eru undir 55 DKK á tímann á meðan láglaunafólk í Danmörku hefur 110 DKK á tímann. Ekki að furða þó slátrun, kjötvinnsla og störf tilheyrandi dönskum landbúnaði hverfi úr landi. En eins og fáum hér á Íslandi er kunnugt þá er danskur landbúnaður á hausnum þar sem 25% bænda verða gjaldþrota á næstu 4 árum. Þeir skulda að meðaltali 650 miljónir ISK hver fyrir sig og 65% af launum þeirra verða að koma frá skattgreiðendum. Matvælaverð í DK er það hæsta í ESB og mun hærra en á Íslandi. 

Þetta er hinn innri markaður og læst gengisfyrirkomulag EMU í hnotskurn. Eitt samfleytt skítaboð.

Á síðustu 10 árum hefur fátækt aukist mikið í Þýskalandi. Það var efnahagsrannsóknastofnun Þýskalands (Deutschen Institut für Wirtschaftsforschung) sem sagði frá þessu í nýrri skýrslu. Alls eru 14% allra íbúa Þýskalands fátækir. Samkvæmt mælikvarða stofnunarinnar telst fólk fátækt þegar það þarf að lifa af á undir 60% af meðaltekjum allra í landinu. Um 30% fleiri eru fátækir í Þýskalandi í dag en voru þar fyrir 10 árum. Úr hópi ungs fólks á aldrinum 19-25 ára falla 25% þeirra í flokk fátækra. Um 40% einstæðra foreldra með eitt eða fleiri börn eru fátækir. Bandalag þýskra fylkisbanka (Landesbank) aðvarar stjórnvöld um að fátækt meðal gamals fólks í Þýskalandi muni verða vaxandi vandamál; Berliner Zeitung 

300.000 manns fóru úr þýska hagkerfinu á síðasta ári. Ekki nóg með það að allir vilji fá lánað AAA-kreditkort Þýskalands núna, þá sagði þýska hagstofan frá því um daginn að Þjóðverjum hefði fækkað um 300.000 manns á árinu 2009. Þjóðverjum byrjaði að fækka árið 2003 og var fækkunin um 400.000 til 500.000 manns frá 2003-2008. Harði fækkunar er að aukast og mun hann aukast ár frá ári næstu áratugi. Mannfjöldaspá þýsku hagstofunnar gerir ráð fyrir að þýsku þjóðinni muni fækka úr 80 milljón manns og niður í 60-65 milljón manns árið 2045-2055. Vöxtur verður varla mikill í svona hagkerfi í framtíðinni. Hætt er við að kjör ungs fólks verði litið aðlaðandi í þessu erfiða ellisamfélagi; Hagstofa Þýskalands

Gunnar Rögnvaldsson, 9.9.2010 kl. 16:53

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Málið er að 20% þjóðverjar eru aldraðir og 10% undir vinnualdri.

Aðalatriðið að mínu mati er að í flestum ríkjum er 50% þegnanna að störfum. Sumir stilla á 10% atvinnuleitendur aðrir á 20% atvinnuleitendur,.....

Aldraðir þjóðverjar eru góðir neytendur í samanburði og færi undir vinnu aldri geta fengið betra uppeldi og mótun.

Svo hefur alltaf ríkt mikill stétta skipting í flestum Ríkjum EU og 10% sem öllu ráða þar passa örugglega upp á að viðhalda sinni stærð.

Mannfjöldaspáin gerir greinlega ráð fyrir hlutfallslega meiri tækni og fullframleiðslu og þar af leiðandi hærri þjóðartekjum á haus hvers Þýsks skattgreiðenda.

Allir vita að þjóðverjar eiga eitt stærsta og öruggasta langtíma veðlánasafn í heimi þar sem þeir geta yfirleitt boðið upp á lægstu raunvextina á móti. Láta aðra skammtíma hugsandi um  áhættuvextina eða sýndar rauntekjurnar.

Þjóðverjar eru mjög framalega í að rækta lífæri til að viðhalda öldruðum.

Gæði skipta öllu máli, Maó breytir því ekki.

Júlíus Björnsson, 9.9.2010 kl. 17:48

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þ.e. mjög alvarlegt fyrir Þýskaland, ef fátækt er að vaxa svo mikið.

En sögulega, þá er fátækur tötralýður uppspretta óstöðugleika.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 9.9.2010 kl. 23:05

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

IMF bendir á það í skýrslu sinni 2005 fyrir Ísland að félagslegar niðurgreiðslur séu búnar og fari harð minnkandi á Norðurlöndum og Þýskalandi.  

Enda tel ég það stafi af því að ríkinn eru orðin minna þjóðleg í heildina. Margir nýbúar kalla það ríkidæmi sem gamalmennin kalla fátækt.

Júlíus Björnsson, 10.9.2010 kl. 00:49

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Eins og þú bendir réttilega á Einar Björn þá fylgist þetta að, - þverrandi velmegun og greiðfærni fólks inn í innkeyrsluna að tröllreið óstöðugleikans - hins pólitíska óstöðugleika og öfga.

hér er söguleg mynd: Atvinnuleysi í Þýskalandi og kosningafylgi öfgahóps nasista (© Brad Delong)

Atvinnuleysi í Þýskalandi og kosningafylgi öfgahóps nasista

 
Undanfarnar vikur hefur Thilo Sarrazin-málið geisað í Þýskalandi (sjá frétt MBL; Sarrazin víkur úr bankaráði Bundesbank). Meirihluti þýsku þjóðarinnar er víst sammála honum og samkvæmt skoðanakönnun myndu um 18% þjóðarinnar kjósa anti-innflytjendavænan stjórnmálaflokk sem væri leiddur af Thilo Sarrazin. Það þarf ekki mikið til að kveikja í púðurtunnum sem hafa fengið að þroskast svona vel og lengi. 
 
======================

Sarrazin threatens to fight dismissal decision in court

Thilo Sarrazin, the Bundesbanker about to be fired by Germany’s president Wulff, has already threatened legal action, according to Reuters, and warned the president not to see what a called a political show trial to its end, as it will ultimately be thrown out by the courts. There is also criticism of the president, for having put the Bundesbank under pressure to recommend the dismissal of its renegade banker. FT Deutschland reports that President Wulff was now hesitating, and trying to hide behind the government, by seeking its legal advice.

Meanwhile, opinion polls show a robust degree of support for Sarrazin and his views. According to a poll in the Sunday edition of Bild, 18 per cent of German would vote for an anti-immigration party headed by Sarrazin. The support is strongest among supporters of the Left party (We always through that the Left party is, deep down, a far right party). This follows several recent polls showing that there is a strong potential for a new party on the right side of the political spectrum, as chancellor Merkel’s CDU moved towards the centre. Spiegel Online has a full report. (frá: Eurointelligence; Belgium’s deputy PM says prepare for the end of Belgium as new political crisis looms)
 
Meira:
 
 

Gunnar Rögnvaldsson, 10.9.2010 kl. 01:20

9 identicon

Sarrazin sagði af sér í gærkveldi.  Sarrazin gekk of langt í bókinni sinni.  Hann talaði um það að gyðingar væru með gen.  Fleira stendur í bókinni hans.  Hér er frétt um það.

Erika Steinbach sagði líka af sér öllum trúnaðarstörfum innan CDU.  Hún sagði að Pólverjar hefðu verið tilbúnir í stríð við Þjóðverja árið 1939 og hefði því verið fyrri til.  Hér er frétt um það.

Það er engin hætta á því að öfgamenn nái einverjum völdum hér í Þýskalandi.  Sarrazin er ekki öfgamaður og því hefðu 18% ekki verið til þess að kjósa öfgamenn.  Hann er með furðulegar skoðanir sem hann kemur ekki rétt frá sér.

Auðvitað sveiflast hagkerfi upp og niður.  Þýska hagkerfið er ekki undantekning þar.  En það þarf ekki að fara að gera lítið úr því sem náðst hefur hér í Þýskalandi.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 10.9.2010 kl. 06:23

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Stefán. 

Í desember kom Martin Schulz, sem er og leiðtogi sósíalista á þingi Evrópusambandsins, og lýsti því yfir að frá og með nú séu 184 þingmenn þessa hóps sósíalista orðnir "hreyfing and-kapítalista" sem munu ráðast gegn "hagkerfi sem byggist á peningum eða sem er peningaknúið". (Við erum and-kapítalistar núna)

Hér gengur greinilega allt eins og það á að ganga eftir að Berlínarmúrinn féll frá austri og yfir Vestur-Evrópu. Hann féll mest vestur á bóginn en ekki öfugt, greinilega. 

Ýmislegt er að gerast í Þýskalandi Stefán, það verð ég að segja.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 10.9.2010 kl. 07:40

12 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Já Gunnar - ef ég man rétt, fengu nasistar 3% atkvæða 1928 en í kringum 30% 1932. 1929 hófst kreppan.

Þ.e. beint samband milli massa atvinnuleysis og tilheyrandi fj. fátæktar og fylgis öfgaflokka.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.9.2010 kl. 23:25

13 identicon

Einar Björn:  Eins og t.d. á Spáni.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.9.2010 kl. 00:26

14 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sannarlega, borgarastyrrjöldin hófst mjög fljótlega eftir að heimskreppan skall á.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.9.2010 kl. 00:48

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gunnar Rögnvaldsson, 11.9.2010 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband