Leita í fréttum mbl.is

Þýsku kosningarnar: Merkel mun sitja sem stirðnuð önd á stóli og hið undirliggjandi mjakast fram [u]

- bloggfærslan er uppfærð með nýjustu tölum og betri frásögn

Þingkosningar Þýskalandi 2017 - breytingar á fylgi flokka v2

Mynd (ARD kl. 06:06 þt.): Breytingar á fylgi flokka

Kosningarnar í Þýskalandi eru að birtast sem opin gröf fyrir Angelu Merkel og flokk hennar. Í Bæjaralandi er flokkurinn að fá sína verstu útreið í 68 ár, eða allar götur frá 1949, nú þegar úrslitin eru komin inn

Angela Merkel er tapari kosninganna. Flokkur hennar missti mest og endar á aðeins 33 prósentum atkvæða og missir 8,5 prósent fylgi. Þýskalandið hennar er grundig upplausn. Fyrir kosningar sat Merkel-ríkisstjórnin á 80 prósent þingsæta. Það hlutfall er hér með klippt og skorið niður í rétt rúmlega 50 prósentur

Krónísk lömunarveiki Angelu Merkels, vinstra daður og innflytjenda- og innri öngþveitisstefna hennar með fálmurum, er það sem upp gaus úr kjörkössunum. Fólkið vill fá landið sitt og sjálfsákvörðunarréttindi aftur. En fólkið mun ekki fá neitt slíkt

Í kjörkössunum voru neyðarbremsuklossar á þrennt:

Í fyrsta lagi kom AfD-flokkurinn upp úr þeim sem sigurvegari kosninganna. Stjórnmálaflokkur sem talað hefur gegn upplausnar- og öngþveitis-innflytjendastefnu Merkels. Í austri fær hann 20,5 prósent atkvæða og 12,6 prósent á landsvísu. Öll kjördæmi Saxlands fékk hann, nema Dresden, en þar munaði aðeins einu prósenti á honum og CDU. Hann er þar með orðinn þriðji stærsti flokkur Þýskalands, stofnaður fyrir aðeins fjórum árum og tæplega þrefaldar fylgi sitt núna. Hann mun leiða stjórnarandstöðuna, ef ég giska rétt á komandi stjórnarmyndun

Í öðru lagi er fimm strokka brembo-bremsuklossi FDP-flokksins á evru- og evrópusambandið og þar með á fyrirhugaða ESB-skáldsagnagerð Emmanuel Macron forseta Frakklands um Evrópu, sem koma mun honum illa út. FDP tvöfaldaði næstum fylgi sitt og fær 10,7 prósent. Ef ég giska ekki rétt á stjórnarmyndun Merkels með SPD, þá mun FDP krefjast lyklanna að fjármálaráðuneytinu og loka niður ESM (E2012-rotvarnarefni í evru) og þar með í framhaldinu hugsanlega velt evrusvæðinu um koll. Ef ekki tekst að mynda stjórn með FDP, þá gætu nýjar kosningar verið boðaðar síðar í haust eða í vetur. Þýskaland gæti orðið stjórnlaust land

Og í þriðja lagi eru úrlistin verstu afhroð þýskra sósíaldemókrata nokkru sinni (SPD). Sá flokkur fær aðeins 20,5 prósent og missir 5,2 prósent. Rauðan reykinn leggur út um eyrun á þessum skrjóði Schröders. Hann bræddi úr flokknum með grundig allsherjarsvikum; Þýskalandið hans er nú láglaunaland

Undirliggjandi og óhjákvæmilegt

- Schröder sósíaldemókrati og fyrrum kanslari situr nú í Rússastjórn Rosnefts, hjá Vladimir keisara Pútín, til að undirbúa bandalagsuppbyggingu Þýskalands og Rússlands, vegna þess að Þýskaland veit að Evrópusambandið sem það notar til að drottna yfir Evrópu, er að leysast upp. Skrjóðurinn Schröder er því sendur út af sökkvandi örk Evrópusambandsins með samþykki Merkels, til að sannfæra Pútín um að Þýskaland sé háð honum og til að koma í veg fyrir vinskap Rússa og Frakka. Heima fyrir þaggar Merkel á meðan eins og hún getur niður NATO-getuna og dælir pólitísku grumsi þar inn. Pólland, klemmt á milli þessara tveggja gömlu djöfla, veit þetta vel og hamast því við að byggja upp bolverkið gegn þessu, saman með strategíska stórvininum Donaldi Trump og gengur sú bygging mjög vel, án aðkomu NATO. Hún heitir Intermarium. Pólland verður næsta nýja stórveldið innan Evrópu. Allt mikilvægt sem er að gerast í Evrópu er að gerast í austri og er Pólland helsta miðstöð þeirrar þróunar ásamt Rúmeníu. Ungverjaland gekk úr Pútín í þessum mánuði og í lið með Póllandi. Það andaði því köldu á Pútín í heimsókn hans til Búdapest í ágúst. Þýskaland misnotar því ESB til að ofsækja Pólland og Intermarium-bandamenn þess, svo lengi sem það er í standi til að drottna yfir Evrópu með Evrópusambandinu sem verkfæri. Þýskaland er óverjandi landsvæði á norðursléttum Evrópu, ef verja þarf báða flanka þess samtímis (austur-vestur innrásarhraðbrautin). Alpar loka suðrinu að mestu og einn sjór í norðri kaupir því vissan tíma. Svipað gildir um Frakkland. Og án Bandaríkjanna er Pólland farið. Og án Póllands og Bandríkjanna er Evrópa farin

Áratuga viðskiptum með fullveldi ESB-ríkja á pólitískum kauphallargólfum meginlandsins fer nú að ljúka. Fyrst kom árið 2009 með sitt sudden-stop í fjármálum ESB-landa og þau mál standa óleyst enn. Og næst er það hið pólitíska makró Evrópu sem gengur ekki lengur upp. Fólk álfunnar er búið að fá nóg. Allir vita að "heilbrigð skynsemi" manna sá ekki neitt árið 2008/9. Hún mun heldur ekki sjá þetta koma, vegna þess að hún er eitt lélegasta verkfæri sem til er

Restin og niðurlag

Kommar og grænir fá hvor um sig í kringum 9 prósent og eru frosnir fastir þar. Engin breyting þar. Búist er við að kosningaþátttakan hafi verið 75,9 prósent

Þýska þjóðin hafnaði Angelu Merkel, en sitja mun hún samt, því að þýskt stjórnmálalíf er notbremsenresistent. Ekkert gerist þegar togað er í hemlana. Nema í Bretlandi sem hoppað hefur af ESB-lestinni á leið hennar með meginlandið til heljar. Sósíaldemókratar hugsa í límósínum og kavíar, þeir munu því hoppa í stjórn sameinaðra tapara á sjálfu meginlandi taparanna

Fyrri færsla

Madríd sendir fleiri löggur


Madríd sendir fleiri löggur

Nú hefur Madríd bætt í og komnir eru 17.000 lögreglumenn til Katalóníu, sem hún þangað hefur sent. Það verður fróðlegt að sjá hversu langt Madríd ætlar að ganga og hversu mikið vald hún ætlar að nota: Sjá: Spánn sýnir klær og skerpir

Misþyrming ESB á Spáni með samþykki ríkisstjórna í Madríd, hefur ekki farið vel niður í íbúa Katalóniu, sem ásaka Madríd fyrir að mergsjúga þá með sköttum undir niðurskurðahnífaveldi Berlínar í ESB-væddri spillingu

Það fer um ESB-menn í til dæmis París, því ef Katalóníu verður hleypt út þá mun Korsíka sennilega láta verða af því að yfirgefa Frakkland

Yfirvöld, hver sem þau kallast, með réttu nafni eða hjánefni (til dæmis Troika), eru því líkleg til að viðhafa sömu röksemdafærslu og látin er ganga yfir Bretland: þ.e. að reyna að sýna þeim sem hugsa slíkt hvað bíður þeirra ef þeir skyldu fá rangar hugmyndir

Og svo er þeim öllum sagt að þeir muni aldrei komast inn í ESB aftur, en sem ESB er að reyna að hindra að Bretland komist úr

Og nú hefur ESB-Rannsóknarrétturinn verið sendur til Póllands, til að kveða niður það sem eftir er af nýfenginni sjálfstæðri hugsun og til að særa út þær forboðnu hugmyndir sem Pólverjar hafa fengið um Evrópusambandið eftir að hafa kynnst því, þ.e. að Pólverjar ætla ekki sætta sig ekki við að hafa komist hálfdrepnir út úr einu Sovétríkinu til þess eins að vera nú komnir inn í annað slíkt. ESB hótar að bannfæra Pólland

Það hitnar í kolunum út um alla Evrópu og er sá hiti á ESB-fagmáli kallaður stöðugtleki. Man ekki lengur hvað Sovét-Kremlið kallaði svona ástand

Fyrri færsla

Spánn sýnir klær og skerpir


Bloggfærslur 24. september 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband