Leita í fréttum mbl.is

Afsagnar Bjartar Ólafs­dótt­ur um­hverf­isráðherra beðið

Nú eru liðnar 30 sýningar-klukkustundir frá því að dómgreindarskertur ráðherra Bjartrar framtíðar subbaði til æðstu stofnun íslenska lýðveldisins með svo skerandi ískrandi dómgreindarskorti að stór hluti þjóðarinnar stendur agndofa yfir ósvífni hennar og þeim slæma félagsskap sem hjálparlaus ráherrann virðist vera ofin föst í. Reynt hefur sá félagskapur ráðherrans - og sem virðist stýra henni - að aðstoða dómgreindarskerta hana með því að spinna um ráherrann vef af þvælu sem hvergi á heima nema í nálapúða heimskunnar

Er ráðherrann of dómgreindarskertur til að geta tekið svo einfalda og sjálfsagða ákvörðun? að taka ábyrgð á gjörðum sínum með því að biðjast lausnar frá embættinu, með þeim rökum að henni sé hvorki treystandi til að fara með embættið né umgangast þjóðþing Íslendinga með lágmarksvirðingu og án þess að skaða og baða það allt opinberlega í einum allsherjar dómgreindarskorti og fávisku, sem jafnvel greinarskert fólk myndi ekki láta sér til hugar koma

Hvað ætlar þessi ráðherra Bjartrar framtíðar að gera? Á þetta að vera framtíðin eða ekki?

Fyrri færsla

Strekkt björt strigakerling á fúnum ramma


Bloggfærslur 1. ágúst 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband