Leita í fréttum mbl.is

Frakkland að falla?

Það er átakanlegt að verða vitni að því að fyrsta verk nýkjörins forseta Frakklands skuli þurfa að vera það hlýðnast niðurskurðarstefnu Þýskalands. Og enn meira niðurlægjandi er það fyrir Frakka, að þurfa að skera niður það sem vernda á frönsku þjóðina gegn einmitt þeim sem fyrirskipar niðurskurðinn - og sem kom honum til leiðar með því að grafa undan efnahag Frakklands

Þýskaland hristir jólatré sitt Frakkland, og af því fellur strax yfirmaður franska hersins. Þetta er hreint með eindæmum. Hvenær skyldi hristingnum ljúka og ljósin slokkna á evruseríunni. Það verður fróðlegt að fylgjast með sólarlagsmálum Evrópu á næstu árum. Þegar myrkraverkin koma og tala

Svona er að vera nágranni svarthols. Þá þarf maður eitthvað til að halda sér í. En hvað?

Hinn nýkjörni franski forseti hefur hér með tryggt sér franska herinn á móti sér næstu 5 árin. Hver skyldi nú hlaupa til og gerast bandamaður forsetans gegn hernum. Franska þjóðin? Varla

Fyrri færsla

Visegrad-löndin í ESB kvarta yfir lélegum ESB-matvælum


Bloggfærslur 21. júlí 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband