Leita í fréttum mbl.is

ESB-tröllasamkunda meginlandsins; bless!

"He has erected a multitude of New Offices, and sent hither swarms of Officers to harass our people and eat out their substance"


Fundur Theresu May með fram- og bakbekkjamönnum Íhaldsflokksins gekk vel. Frú May verður forsætisráðherra Bretlands um langan tíma. Hún mun leiða Bretland út úr Evrópusambandinu, þar sem Bretland heldur hreðjataki um yfirfangavörð þess, sem er útflutningsdópistinn Þýskaland. En Þýskaland þolir ekki að neitt land yfirgefi ESB-fangabúðir þess, sem eru hinn svo kallaði "innri markaður" og hið sovéska reglugerðarfargan hans

Yfirgefi lönd þessar fangabúðir þá fellur Þýskaland saman, því það þolir ekki að keppa á mörkuðum undir sinni eigin mynt. Það þarf að ríða um heiminn á brotnum bökum annarra. Bretland er því frá og með nú á leið til að verða fullvalda ríki á ný. Til hamingju með það Bretland

Tilgangslaust er að tala um "hart" eða "mjúkt" Brexit. Fullveldi Bretlands mun sjá landinu fyrir þeim viðskiptasamböndum sem landið þarf á að halda. Bretland þarf ekki á Evrópusambandinu að halda. En Þýskaland þarf hins vegar á þeim fangabúðum að halda til að halda sér gangandi

Gervihnettir á sporbraut umhverfis Þýskaland eru í landfræðilega og pólitískt erfiðri stöðu. Þau lönd þurfa á bandamönnum að halda og þeir bandamenn eru og verða ávallt Íhaldsmenn hins engilsaxneska heims, sem aldrei trúað hafa á þvaðrið um úníversalisma John Locke. Eru því stjórnarskrár Þýskalalands og Frakklands dúkkulísugarðar einir, eins og sagan sannar. En verst af öllum þeim misfóstrum er þó sjálf stjórnarskrá Evrópusambandsins sem er tær sovéskur John Locke

Gott verður fyrir Bretland að yfirgefa þessa tröllasamkundu meginlandsins. Það er "self-evident" sannleikur, en ekki "úniversal"

Fyrri færsla

Hvernig myndi fara ef DDRÚV tæki sitt eigið meðal?


Bloggfærslur 14. júní 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband