Leita í fréttum mbl.is

Hvernig myndi fara ef DDRÚV tæki sitt eigið meðal?

DDRÚV í Austurberlín Reykjavíkurborgar hefur komist að þeirri niðurstöðu að reiðjólaverslun Fálkans sé með lægsta verðið á ökutækjum. Borin voru saman vöðvaknúin ökutæki, fóðruð á matvælum, og hins vegar vélknúin ökutæki, fóðruð á pressuðum jurtaleifum úr krúttmögum risaeðla. Og viti menn: Fálkinn er með ódýrustu ökutækin

Hvernig myndi nú fara fyrir DDRÚV ef þeir neyttu sinnar eigin feiti, þó ekki væri nema bara fyrir slysni. Hvernig skyldi því lúxus batterí vinstrisinnaðra ríkisbubba reiða af í svona eins og einnar mínútu samkeppni

Myndi það lifa daginn af? Nei það myndi DDRÚV ekki gera. RÚV er hörmulegt misfóstur sem ekki er hægt að laga. Það verður því að loka þessari einokunarbúllu og afhenda Þjóðminjasafninu svo kallaðan menningararf þess til varðveislu og viðhalds. Og það helst strax. Þeir hafa rústað sjálfum sér svo oft að um útvarpandi rústir einar er að ræða. Stríðsminjasafn!

Þetta er sem sagt enn ein falska fréttin frá DDRÚV úr Austurberlín Reykjavíkurborgar. Svona lifir það af enga samkeppni

Einu sinni reyndi sænska COOP að reka sovéskar verslanir í Svíþjóð. Öllum vörum átti að pakka í eins umbúðir án kennimerkja. Þetta dó þó skömmu eftir fæðingu. En hér með hefur DDRÚV blásið nýju lífi í gamla sænska sovétið. Gjörið svo vel, DDRÚV er bara best því það fær mest, ekki satt. Og svo er það Samanburðar-Trabantinn maður - og sambærilegu sovésku ljósaperurnar!

Fyrri færsla

Kostuleg Costco koma


mbl.is Krónan og Bónus ódýrari en Costco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. júní 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband