Leita í fréttum mbl.is

Evrópusambandið: fjöldagrafreitur þjóðfrelsis og lýðræðis

Útþurrkun jafnaðarmanna í Frakklandi 2017

Mynd: kjördæma-útþurrkun jafnaðarmanna í Frakklandi. AFP

Á þessari mynd sést svo kallaður jafnaðarmannaflokkur Frakkalands eftir þrotlausa 60 ára kjarnorkuvopnaárás hans og Evrópusambandsins á stjórnmálin í Frakklandi. Landið er farið að líkjast rúst, jafnvel á jörðu niðri. Charles de Gaulle hefði aldrei samþykkt Evrópusambandið. Aldrei. En hann hefði sennilega samþykkt væga blöndu af gamla EEC. Evrópusambandið er pólitískir öfgar sem fimmtánda stjórnarskrá Frakklands, síðan 1791, hefur ekki megnað að stöðva

Sumir halda að jafnaðarmenn séu eitthvað annað en sósíalistar. En sósíalistar eru og verða sósíalistar sama hvaða veghefil þeir nota til að jafna allt við jörðu. En nú hafa þeir sem sagt jafnað sjálfa sig út úr Frakklandi. Þeir eru orðnir svo jafnir, að fótur manna með rautt blóð í æðum, getur ekki lengur flatt þá þynnri út

Og það yndislega hefur nú gerst að Brezhnev-Claude Juncker, ókjörinn aðalritari miðstjórnar sovétríkja Evrópusambandsins (NSU), hefur tekið í höndina á franska bankamanninum Macron, sem vann hjá taparanum Hollande, og kysst hann á báða vanga. Bankabréfin hækkuðu einnig histerískt á mörkuðum í Frakklandi og Þýskalandi í gær. Þeir og Emma* þykjast nú þegar hafa unnið forsetakosningarnar

* European Monetary Madness Area

Fyrri færsla

Frakkland: ein allsherjar höfnun og klofningur


Bloggfærslur 25. apríl 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband