Leita í fréttum mbl.is

Evrópa er að rifna í sundur, þökk sé Evrópusambandinu

Perspektíf Þýskalands

HEFND LANDAFRÆÐINNAR

Suður-Evrópa er á leið burt frá Norður-Evrópu. Frakkland er eina landið sem er bæði í Suður- og Norður-Evrópu. París er því að falla ofan stórt gat sem myndast hefur við það að miðjan í Frakklandi er horfin vegna þarfa sem ekki er lengur hægt að uppfylla. Þar er bara pólitískt tóm hola ofan í jörðina. Frakkland er að breytast í útstrokað leðurblak Þýskalands

Norður-Evrópa er á leið burt frá Suður-Evrópu vegna þess að hún, með Evrópusambandið í rassvasanum, sökkti Suður-Evrópu

Austur-Evrópa er á leið burt frá Vestur-Evrópu af því að Vestur-Evrópa er á leið burt frá Austur-Evrópu, með því að skilja ekki þarfir hennar. Pólland og Intermarium-löndin þurfa að kljást við bæði Austur-Pútín og Vestur-ekkert. Þau munu rífa sig laus frá leðurblakinu

Í miðjunni er svo þetta Ekkert. Það er Þýskaland, sjálft miðflóttaaflið í Evrópu. Þýskaland er vandamálið sem er að tæta meginland Evrópu í tætlur. Áttavillt, pólitískt farlama og gelt svarthol sem verður að flytja út helming landsframleiðslunnar til að geta lifað af. Það notar Evrópusambandið og hinn innri markað þess sem pólitískt protektorat og sitt eigið Grosswirtschaftsraum Deutschlands, í hugmyndafræðilegum anda Adolfs Hitlers

Sæfara Evrópa, Skandinavía og Bretlandseyjar eru hvorki í ESB né Evrópu, nema að nafninu til. Þau eru sér á báti. Af því að Frakkland er bæði í suðri og norðri, veit það ekki enn með vissu hvort það eigi að vera í bátnum með sæförunum, eða ekki. Frakkland kann vissulega mjög vel á skip, en það getur líka siglt á Miðjarðarhafinu. Það getur norðrið ekki

Evrópa er ekki bara í efnahagslegri kreppu, hún er einnig í pólitískri kreppu sem er að breytast í afgerandi tilvistarkreppu. Allt kreppur sem tilvist Evrópusambandsins hefur skapað. Ófriður ríkir þar nú og hann mun á einn eða annan hátt þróast í styrjöld, innvortis sem útvortis

Kosningar eru það versta sem gerst getur í augum Evrópusambandsins. Sambandið hatar kosningar og myndi banna þær ef það gæti gert einmitt það. Og það styttist í þannig kosningar, þar sem bannað verður að kjósa um neitt sem skiptir máli. Reyndar hefur það nú þegar gerst. Engar kosningar geta því lengur lagfært neitt

Bremsurnar eru búnar og orðnar ónæmar. Engar kosningar í löndum sambandsins skipta lengur máli. Ekkert getur stöðvað upplausn Evrópusambandsins. Enginn þekkir lengur sambandið miðað við hvernig það var árið 2007. Á aðeins tíu árum er það orðið óþekkjanlegt. Og eftir næstu tíu ár verður það ekki lengur til. Það verður þá orðið ekkert. Þannig enda öll sólkerfi á sporbraut um svarthol

Hefnd landafræðinnar verður sæt

-sjá fyrirlestur Roberts D. Kaplan

Fyrri færsla

Stendur Kína í raun fyrir Norður-Kóreu? Trump sendir armöðu af stað


Bloggfærslur 13. apríl 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband