Leita í fréttum mbl.is

Auðvitað skulda NATO-ríkin NATO

Myndskeið: vikulegt ávarp Donalds J. Trump til bandarísku þjóðarinnar. Andrew Jackson, Ford og kvenna minnst

Hvað er bandalag? Og hvað er varnarbandalag? Jú það er sáttmáli þjóða um að sameinast um varnir sínar. Að leggja saman í púkkið. Öll ríki þess eiga að leggja sérstaka fyrirfram ákveðna hluti af mörkum til varnarbandalagsins, því bandalagið sem slíkt á sjálft ekkert til að verjast með. Það er ekki her og það á engan her. Þau ríki sem leggja ekki þennan ákveðna hlut af mörkum sem heldur uppi varnargetu bandalagsins, eru að bregðast skyldum sínum gagnvart bandalaginu og þau eru að bregðast þeim ríkjum sem eru í bandalagi við þau. Þau níðast á félagsskapnum á kostnað annarra og þau grafa undan bandalaginu

Þetta þýðir að þau ríki sem hafa skorast undan að inna sinn hluta af hendi skulda bæði móralskt, tilvistarlega og efnahagslega þeim ríkjum sem haldið hafa uppi varnargetu bandalagsins, sem ákveðinn er sem lágmarksframlag

Í reynd hefur þetta þýtt að Bandaríkin standa næstum ein uppi með ábyrgð á varnaröryggi 28 landa því að hin 27 ríkin eiga einnig að verja Bandaríkin

Uppsöfnuð skuld Þýskalands er svo gerræðisleg á alla kanta að landið yrði gjaldþrota ef því væri sendur reikningur fyrir þeim kostnaði sem Bandaríkin hafa lagt á sig til að verja Evrópu og sérstaklega Þýskaland

Það er skammarlegt að sumir skuli enn halda því fram, að af því að löggan fái að nota vegina sem þarf til að sinna löggæslu, að þá eigi hún bara að vera þakklát fyrir að þurfa ekki að borga fyrir vegina. Að það séu hagsmunir hennar en ekki þeirra sem hún gætir. En þannig hefur framkoma Íslendinga í NATO að mörgu leyti verið síðustu 25 árin, ef ekki lengur.

Bandaríkjamenn spyrja því enn meginland Evrópu að því hvenær lönd þess ætli að ganga í NATO. Því það hafa þau ekki gert, en segjast samt hafa gert það. Þau eiga ekki rétt á neinu - nema að leggja sitt fullt út af mörkum

Hvort að það muni hafa innvortis horror þýðingu fyrir meginaland Evrópu að Þýskaland vígbúist á ný, er svo önnur spurning sem þarf að svara. En hún er þó tengd öðru en tilvistargrunvelli NATO

Þýskaland er svo stórskuldugt að það er ótrúlegt að menn sjái það ekki, sérstaklega innvortis í Þýskalandi. Bandaríkin gáfu landinu gjafir og gjafir og gjafir og áratugum saman vernduðu þau alla geira þýska hagkerfisins gegn erlendri samkeppni. Enginn komst inn í Þýskaland og markaði þess, þar var allt læst og lokað nema fyrir útflutning landsins, sem Bandaríkin hafa einnig verndað á heimshöfunum í 70 ár

Borgi NATO-löndin ekki það sem til þarf til að halda varnargetu bandalagsins uppi, þá er NATO búið að vera sem varnarbandalag. Við tæki þá staða þess í veröldinni sem skrifstofuveldi, sem Bandaríkin hafa engan áhuga á að taka þátt í. Skrifstofuveldi verja ekki lönd. Þau tortíma þeim

Í stefnumarkandi smíðum í Bandaríkjunum er -ef ég hef rétt fyrir mér- ný geopólitísk varnarstefna sem Evrópa hefur ekki jarðneskan séns á að lyfta, og jafnframt engan sem helst tilvistarlegan skilning á, því Evrópa er að dauða komin, bæði líkamlega og andlega. Hún hefur engin áhrif í heiminum lengur og er jafnframt ófær um að hafa áhrif á sjálfa sig. Tími hennar er liðinn og mun aldrei koma aftur. Það er ekkert símanúmer í Evrópu, ekki einu sinni símsvari

Það er orðið ódýrara fyrir Bandaríkin að láta Evrópu drepast en að halda henni á lífi. Pólland -sem eftir aðeins 25 ár verður sterkara afl í Evrópu en Þýskaland- og Intermarium löndin ásamt Bandaríkjunum þráðbeint, halda Rússlandi í skák. Þau eru nóg, því Rússland er ekki Sovétríkin lengur. Og þess fyrir utan þarf Rússland eins og Bandaríkin á öllu sínu afli að halda í aðrar áttir næstu 100 árin

Ísland getur valið um að tilheyra líkhúsinu Evrópu í gamla heiminum, eða að endurstaðfesta tilvist sína sem verandi varanleg og lífsgefandi tilvist í nýja-heiminum, sem Ísland óumdeilanlega er hluti af. Það kostar okkur ekki nema tvö prósent af landsframleiðslu í varnargetu að tryggja okkur gegn því sem verður. Það er allt og sumt. Og það er ekki eftir neinu að bíða, nema dauðanum. Við getum þetta

Fyrri færsla

Ekki rétt. Sem sagt rangt


Bloggfærslur 19. mars 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband