Leita í fréttum mbl.is

DDRÚV ætlaði að mynda ríkisstjórn án aðkomu kjósenda, kvöldið fyrir kjördag

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

VÖRNIN ER ÍSLENSKI FÁLKAFLOKKURINN

Kvöldið fyrir kjördag hóf Ríkisútvarpið DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar stjórnmálaþátt sinn í kosningabaráttunni, sem átti að grafa undan Sjálfstæðisflokknum, með því að reyna að mynda ríkisstjórn í sama sjónvarpssal og stofnunin heldur úti til höfuðs formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni

Gargandi vinstriflokkur Samfylkingar ræðst nú í anda með ESB-félögum sínum til uppgöngu gegn ríkisstjórn Katalóníu sem lýsti yfir sjálfstæði í dag. Félagar íslenska ESB-fjórflokksins (VG, Píratar, Samfó og Viðreisn) njóta stuðnings Angelu Merkel sem lokuð er inni í búri kosninga, sem hún getur ekki unnt þjóðinni sem myndar nú hið nýja lýðveldi Katalóníu; þ.e. kjörklefa

Samfylkingin ætlar að sigla Skjaldborginni gegn fólkinu til Spánar svo að Madríd geti með henni bankað Katalóníu á Samfylkingarstað. Vinstri grænir ætla hins vegar að senda Steingrím Joð til að styrktar Brussel, með brosi Katrínar miklu á Vör. Viðreisn sendir Benedikt Svitabola til að fræða Katalóníumenn um rétttrúnaðarkosti evrunnar sem er að sprengja Evrópu til himna. Píratar ætla að fræða Katalóníu um regluverkið og um að hún þurfi að bæta stjórnmálin með hjólapumpu og bótum - og níði um land sitt og þjóð erlendis á ensku

Bjarni Benediktsson bar af og það sáu allir sem sjá vildu

Krækjur

Fyrri færsla

Vinstri grænir: Ísland úr NATO og fullveldið burt


Vinstri grænir: Ísland úr NATO og fullveldið burt

Fálkamerki Sjálfstæðisflokksins

VÖRNIN ER ÍSLENSKI FÁLKAFLOKKURINN

Það lítur úr fyrir að framlengdu eitri verði svo sannarlega blásið í kosninga-svikaumsókn Vinstri grænna inn í Evrópusambandið AG. Og ekki nóg með það, þá skal Ísland líka úr NATO á meðan fullveldi þjóðarinnar er selt burt. Verð: sömu ráðherrastólarnir og notaðir voru sem skjaldborg gegn þjóðinni síðast

Nýtt stríð við þjóðina skal hafið og fullveldi hennar kollvarpað í boði ESB-flokkanna; Vinstri grænum, Pírötum, Samfylkingu og Viðreisnar

ESB-herinn sem þessi ESB-fjórflokkur vill hins vegar ganga í er verið að kalla saman gegn Katalóníu sem virðist vera að reyna að lýsa yfir sjálfstæði einmitt núna í dag - og FT/Bankablað ESB-elíta hefur greinilega þungar. Þannig hoppa hin földu íslensku ESB-pungdýr um í poka ESB-bikkjunnar í stríðsdansi gegn þjóðunum og sjálfsákvörðunarrétti þeirra. Svo stökkva þau út eftir kosningar eins og 2009 og sturlun sest við völd

Brottrekinn Jón Bjarnason er að gera sömu mistökin og sakleysinginn ég gerði 2009 þegar ég lét það eftir mér að óska Vinstri grænum til hamingju með kosningasigurinn og bað þá um að fara vel með valdið. Hann hélt líka að flokkur hans væri allur annar en það sem hann sýndi sig vera - og var flæmdur burt. Jón er haldinn ólæknandi trú á rautt. En sú trú mun sennilega éta hann upp til agna að innan. Slíku veðmáli um fullveldi Íslands ætti enginn að taka, því það er heilagt

Aðeins ein vörn er til gegn þjóðsvikum af því taginu sem komust til valda þá. Hún heitir Sjálfstæðisflokkurinn, sem er fálkaflokkur Íslands. Hann er massífur fullveldisflokkur. Ég gekk því í hann í fyrra, því þar á ég heima. Stingum okkur á max-afli niður á ESB-vænginn og tætum af honum fjaðrirnar!

Katrín boðar ESB-stjórn undir forsæti VG

Fyrri færsla

Hagsveiflur eru nauðsynlegar. Þær drepa ímyndaðar iðnbyltingar


Bloggfærslur 27. október 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband