Leita í fréttum mbl.is

Skelfilegt: stjórnmálamaður sem meinar það sem hann segir!

Mikið fát og fum er að grípa um sig. Í Hvíta húsið er sestur maður sem meinar það sem hann segir. Og sem ætlar að framkvæma það sem hann lofaði kjósendum. Þessu eru menn ekki vanir. Það er náttúrlega algerlega skelfilegt að kjósendur fái ekki bara eitthvað fyrir atkvæði sitt; heldur fái það sem þeim var lofað

Eitt af því sem Trump segist ætla að gera hefur hann sagt á sem breiðastan hátt til að halda sem flestum leiðum opnum fyrir hvernig hann ætlar að ná því markmiði sínu; að uppræta Ríki íslams (ISIS). Að hann segi þetta, þýðir að Bandaríkin álíta "öfga-íslam" ógn við hagsmuni Bandaríkjanna í heiminum. Alvarlega ógn sem þau verða að takast á við sem fyrst

En það er bara einn hængur á því máli, en sem forsetinn mun þó finna út úr, því hann gefst ekki upp; hvernig á að skilja á milli pólitísks-íslam og ópólitísks-íslam? Svarið við þeirri spurningu er þetta; það er bara alls ekki hægt, því að hið eina rétta íslam er ávallt pólitískt íslam

Þegar íslam er í sínu eðlilega og rétta ástandi, þá er það pólitískt trúarafl og ríkis-stjórnin sjálf. Það mjúka íslam sem Vesturlandabúar hafa lært að þekkja að nokkru leyti er, já, það er hin mölbrotna og ónýta útgáfa af íslam fyrir 1,2 milljarða múslíma á veraldarvísu. Rústirnar af réttu íslam

Hin eina eðlilega og rétta birtingamynd íslams er pólitískt íslam sem bæði og samtímis er trúarlegt,- pólitískt,- og lagalegt yfirhöfuð lágrétts ríkisfyrirkomulags er nefnist kalífat

Þetta þarf Trump að glíma við. Það getur hann, því að virki hans er hið lórétta ríkisfyrirkomulag Vesturlanda sem hinar Heilögu ritningar gáfu heiminum; þjóðríkið. Og þau stjórna heiminum að mestu leyti af því að þau virka. Þau eru meistarar "nútímunar" nútímans (e. modernity)

Þau þurfa ekki að virka öll í einu af því að þau eru lóðrétt ríkisfyrirkomulag. Kalífatið er annaðhvort af eða á, alls staðar í einu, þvert á landamæri , ef það á að virka. Það er lágrétt ríkisfyrirkomulag

Takist Bandaríkjunum þetta ekki, þá verður birtingarmynd hins rétta íslams í fæðingarhríðum sínum eins og fæðingarhríðir byltinga Evrópu voru á einum stað í einu: fjöldamorð út í gegn - en þá bara alls staðar í einu, um allt kalífatið gjörvallt út í gegn

Trump mun sýna þeim hversu glötuð hreyfing þeirra er. Hversu vonlaust þetta er fyrir þá. Hversu mikið ofurefli þjóðríkið Bandaríkin eru miðað við kalífatið. Og það er nóg. Það er nóg að stilla drekanum upp og sýna íslam-x-y fram á ofurefli hans

Þetta munu Bandaríkin geta og jafnframt gera, af því að Evrópa er orðin algerlega getulaust fyrirbæri sem klikkað Evrópusamband álfunnar við ekki neitt. Þar er allt sambandslaust dinga ling gaga gúkk og nuts. Evrópusambands-kalífatið er svik við Vesturlönd, við þjóðríkið, og Evrópa mun þurfa að ganga í sjálfa sig aftur, ef hún á að virka á ný. Sú útganga útaf fyrir sig, mun ekki endilega ganga friðsamlega fyrir sig, - eins og við nú þegar erum byrjuð að sjá. Og það vita íslamistar ákaflega vel. Og það veit Donald J. Trump líka

Fyrri færsla

Fjölmenningarsamfélagið Sýrland


Bloggfærslur 26. janúar 2017

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband