Leita í fréttum mbl.is

Styrjaldarástand: Reykjavík myrkvuð, byltingin hafin

Paradís

TIL-KYNNING

ÖREIGAR ALLRA GATNA! SAMEINIST UM MIG, BORGARSTJÓRANN

Næsta skref er svo að borgaryfirvöld Sovétríkis Reykjavíkur ætla að bjóða erlendum ferðamönnum að ráðast inn í íbúðir fólks til að slökkva þar ljós sem ónáða kynstofninn erlenda ferðamenn í útrýmingarhættu

Ef hægt er að tala um sveitamennsku á Íslandi, þá er þetta hún

Þjónusta borgarinnar við erlenda ferðamenn er frá og með nú innbyggð í alla rafmagnsreikninga og gatnagerðargjöld holudeildar. Gjörið svo vel - borgið við kassa eitt, fyrir ekki neitt

Hér varð nefnilega hrun

Götulýsing var sett upp í borginni á kostnað skattgreiðenda svo að hægt væri að auka þægindi erlendra ferðamanna með því að slökkva á henni undir framköllun á grenjandi erlendum ferðamennum

Allt slökkvistarf í Reykjavíkurborg er nú miðstýrt. Munið það

Sovétríki Reykjavíkur pr. 29. september 2016

Sovétborgarstjóratrúðurinn í Reykjavík

- í samstarfi við Ukraine InTourist

Erlendir ferðamenn athugið: ný sending af uppstoppuðum Íslendingum komin í allar ferðamannagildrur, - miðstjórnin

Erlendir ferðamenn athugið: amma mín er til sýnis á laugardögum klukkan 15, - allir

Næst verður Íslendingum hent út af sjúkrahúsunum, svo að erlendir ferðamenn geti hvílst og jafnað sig á ekkanum

Fyrri færsla

Ég horfði á Trump og Clinton glíma í kappræðum


mbl.is Ljósleysið framlengt til miðnættis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég horfði á Trump og Clinton glíma í kappræðum

Presidential Candidates Debate 26 sept 2016

C-Span: horfa

Eftir að hafa horft á viðburðinn, get ég ekki tekið undir það sem margir fjölmiðlar matreiða sem sigur Hillary Clinton. Þetta var ekki fallegt og pent, það er ekki hægt að segja. En fallegt og pent er of oft einungis fallegt og pent

En ef ég væri óákveðinn bandarískur kjósandi, þá myndi ég ganga út frá þessari samkomu hugsandi að minnsta kosti það, að Trump væri skófla sem skófla myndi skilvirkar fyrir mig næstu átta árin en sú skófla sem Hillary hefur haldið um skaftið á í 23 ár. Að Trump sé sennilega sá sem er meiri "doer" eða framkvæmdamaður. Sé nógu frústreraður með stöðuna eins og hún er, og vaði því betur eld og brennistein fyrir mig, en frú Clinton sem, orðin er hluti af skóflunni

Það er erfitt að skilja afstöðu fjölmiðla sem taka þá stimpla gagnrýnislaust í notkun sem að þeim er rétt, hvað Donald Trump varðar. Það er barnalegt og brexit

Það er eitthvað sem segir mér að þau jákvæðu viðbrögð sem menn segja að hafði orðið á mörkuðum, séu ekki til komin vegna þess að markaðurinn hafi komið auga á sigurvegara. Ég held að ef um jákvæð viðbrögð markaðarins hafi verði að ræða og sem hægt er að tengja við kappræðurnar, séu þau vegna svars Donalds Trump er þau bæði voru spurð að því hvort þau myndu virða niðurstöðu kosninganna

Svar Hillary var það að hún "styddi lýðræðið". En svar Donalds var mun betra, þó svo að honum tækist snilldarlega að láta alla standa á öndinni í biðröð eftir því, á meðan hann í tærri snilld notaði síðustu sekúndurnar til að sýna Ameríkönum nýju skófluna undir 200 prósent extra athygli. Svarið var þetta: ef að Hillary yrði sigurvegarinn þá myndi hann "að sjálfstöðu styðja hana 100 prósent!" Þarna stækkaði Donald Trump mjög

Og þarna létti markaðnum. Honum er alveg hjartanlega sama hver verður forseti og honum hefur alltaf verið nákvæmlega sama um það. En hann vill fá niðurstöðu. Ekki óöryggi um niðurstöðu kosninga og óvissu; e. gridlock. Það fékk hann. Donald sá fyrir því og hann einn skildi mikilvægi þess. Þess vegna gaf hann þetta svar. Strategískt

Mér finnst Donald vera strategískur. Klunni á sinn hátt, en þannig er hann. Sannfærandi um það mikilvægasta; að hann ætli að verða forseti Bandaríkjamanna, en ekki forseti annarra sem engan kosningarétt hafa í kosningunum um hver verður þjóðarleiðtogi þjóðríkis Bandaríkjamanna. Og það er gott fyrir Bandaríkin og um leið gott fyrir allan heiminn

Þegar í embættið er komið, þá er forsetinn þrátt fyrir allt ekki nema 1/3 af ríkisstjórninni. Þetta er engan veginn sú sprengja sem fjölmiðlar hafa blásið upp. Það er meira að segja fínt að fá durg svona inn á milli. Eitthvað verða allir þessir vegheflar að fá að hafa að gera á komandi árum, við að hefla forsetann til. Tekst þeim það? Það efast ég um. Því Donald þarf einnig að sigra 2020. Og það veit hann

Fyrri færsla

Ættum við að setja ný lög um píraterí ?


Bloggfærslur 28. september 2016

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband