Leita í fréttum mbl.is

Í dag ætla ég að kjósa Davíð í fyrsta skiptið

Hann ætla ég að kjósa fyrir forseta í dag

Það er mér sannur heiður að fá að kjósa Davíð fyrir forseta Íslands. Ég fyrir mína parta ætla algerlega að kjósa þennan mann því að Davíð Oddsson er einn mesti Íslendingur sem uppi hefur verið

Ég er þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri til að kjósa Davíð að minnsta kosti einu sinni á æfi minni. Illu heilli var ég fjarverandi frá landi mínu í samfleytt 25 ár. En ég horfði ávallt með öfundaraugum upp til fósturjarðarinnar á meðan Evrópa hélt áfram að hrynja allt í kringum mig öll árin eftir að Evrópusambandið tók völdin af þjóðríkjunum frá og með 1986, með aðstoð nytsamra vesalinga. En hér heima fól þjóðin Davíð umboðið hvað eftir annað. Hann fór afskaplega vel með það umboð. Enda sást það langt að, um víða veröld, svo leitun var að öðru eins og hér vannst á þeim tíma

En Davíð kom aldrei til að kollvarpa neinu. Hann kom til að uppfylla. Og hann uppfyllti og sveik ekki. Enda kosinn aftur og aftur. Vinstri vængur stjórnmála í leit að málstað þoldi þetta náttúrlega ekki og þolir ekki enn, því að sá vængur virðist einungis hafa áhuga á því að kollvarpa, ef til vill eðli sínu samkvæmt

Það er alveg sama hverjir eru "ráðandi" þessa stundina, alltaf skal klisja vinstrimanna kollvarpsvængsins vera sú að kollvarpa verði "ráðandi öflum". Séu þeir sjálfir "ráðandi aflið", þá kollvarpa þeir sjálfum sér. Sé jafnvel Lenín þeirra við stjórn, þá þarf að kollvarpa honum til að kollvarpi þeirra verði ekki kollvarpað af honum, og fari á hausinn, því án kollvarps þessa geta þeir ekki verið

Kröfugöngur þessara kollvarpara eru gengnar á gullskóm með rauða fána við gylltan hún í Dior-drögtum í dag. Ný krafa sem ekki er hægt að uppfylla er sett fram, til að kollvarpa því sem enn stendur uppi. Öll framboð DDRÚV hafa gengið út á að kollvarpa. Og ég hef horft upp á heil tvö framboð DDRÚV til forseta á örskömmum tíma. Það er alveg hreint ótrúlegt að þetta kollvarp DDRÚV skuli vera svona. Og að það skuli yfirhöfuð vera til, sem kollvarp

Ég get ekki annað séð en að talsmenn hins mölbrotna vinstri vængs þjóðarinnar séu algerlega án málstaðar í dag, og grilli kollvörpur bæði í vinnunni og á kvöldin. Og þetta þarf maður að borga fyrir þó svo að ég nánast neiti að láta pynta mig með kollvarpi þeirra lengur

Ég ætla auðvitað ekki að kjósa þetta kollvarps-framboð DDRÚV. Ég ætla að kjósa Davíð Oddsson, ektamanninn hennar Ástríðar hjúkku. Það ætla ég, því ég veit hvað hann stendur fyrir. Hann stendur fyrir þann væng sem enn flýgur

Takk Davíð fyrir að gefa kost á þér. Hattur ofan

Fyrri færsla

Bretland sparkaði Evrópusambandinu út - og úr landhelginni


Bloggfærslur 25. júní 2016

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband