Leita í fréttum mbl.is

Merkilegt af forsetaframbjóðanda

Hefði hin íslenska þjóð verið svikin í Icesavemálinu, þ.e. með því að neita henni um að sækja lagalegan rétt sinn í málinu, þá hefði sá gjörningur getað endað svo illa að hægfara borgarastyrjöld yrði alls ekki hægt að útiloka sem afleiðingu

Þetta segi ég vegna þess, að það, að þurfa að lifa sem íslensk þjóð í meira en hálfa öld með skuldaklafa og greiðsluklafa sem nagar og borar sig inn í sál þjóðarinnar í svo langan tíma, hefði getað komið af stað svo miklum innri ófriði meðal okkar, að friður hefði verið útilokaður í landinu

Hvert einasta ár hefði þjóðin verið rukkuð og hvert einasta ár hefði hún spurt sjálfa sig um lög- og réttmæti rukkarans, og einnig þeirra sem í upphafi gengu erinda hans og neituðu þjóðinni um að leita réttar síns - og hræddu hana með Norður-Kóreuneistaflugi í bensíntanki vinstristjórnarinnar. Var þetta virkilega rétt og lögmætt?, hefði þjóðin spurt ár eftir ár, áratugum saman. Efinn og reiðin hefði borað sig djúpt niður í þjóðarsál og vitund okkar Íslendinga

En kannski var það einmitt tilgangurinn. Að reyna þannig að kollvarpa þjóðríki Íslendinga innanfrá. Og þannig að koma því til leiðar að sundruð og óréttmætt skuldug þjóð hefði verið neydd til að skríða inn í það Evrópusamband sem allan tímann lá að baki hræðsluáróðurs og sundrungar- og uppgjafarstjórnmála vinstri stjórnarinnar (Samfylkingar og Vinstri grænna)

Ísland ætti aldrei að gera samning sem það getur ekki staðið við. Það er því í hæsta máta furðulegt að í framboði til Forseta Íslands skuli vera maður sem hefði getað komið, ýtt og hvatt, þjóðinni inn í þá óbærilegu aðstöðu, hefði hann verið forseti þá. Hér á ég við forsetaframboð Guðna Thorlacius

Icesave mun koma aftur. Ekki í sömu mynd, en það mun koma aftur og þá gæti forsetavaktin fyrir þjóðina, eins og síðast, skipt sköpum um framtíð Lýðveldisins. Hvorki meira né minna

Fyrri færsla

Evrópa er skáldsaga


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 30. maí 2016

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband