Leita í fréttum mbl.is

Aðskilanður komma og ríkis

Nú þegar kommar og kratar Íslands undir allskonar fánum hinna og þessara samtaka og flokka keppast við að brjóta Ísland niður, væri þá ekki rétt að skoða það hvort ekki sé loksins kominn tími á aðskilnað kommúnisma og ríkis?

Einnig mætti skoða aðskilnað öfgamiðju og ríkis. Þetta tvennt fjármagnar sitt pólitíska líf með því að stunda eins konar dópsölu stjórnmála; með því deila út dópi úr skattafjármögnuðum ríkiskassa til að kaupa sér atkvæði og til að gera kjósendur háða sér. Í kringum fjörutíu prósent af landsframleiðslunni er bara tekið til handa þessum öflum - og þau heimta meira og meira, verða aldrei södd

Á meðan er póstþjónusta á öllu Íslandi, auðvitað fyrir utan DDR-kústskaftaveldi Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar, mafíusvæðis pírata, komin hundruð ára aftur í tímann. Fólk og fyrirtæki bíða dögum saman eftir að póstur brjótist út í gegnum borgarmúrana, sem bréfdúfur komast ekki lengur yfir. Er þetta ekki aðskilnaður ríkis frá hinum örfáu frumskyldum sínum?

Sósíalistaríki hætta alltaf á endanum að hafa efni á sjálfum sér. Í Danmörku sósíalismans og (já þið munið: uppreisnarinnar frá miðju (Viðreisnar) hósta hlægja og gráta hér) sem Danir sjálfir kalla DDR-Light, var póstþjónustan nýlega færð aftur til þess sem var árið 1624. Slík er sigurgagna hins norrænda sósíalisma | Postvæsnet er sendt tilbage til 1624

Á meðan dreifir U.S. Mail pósti í heilli heimsálfu eins og að drekka vatn

Aumingjar

Fyrri færsla

Klaustur Íslands betur vopnuð árið 1523 en lögreglan er í dag


Bloggfærslur 26. maí 2016

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband