Leita í fréttum mbl.is

Er nýi Kínamúrinn fullbyggður?

Undanfarið hafa markaðir skolfið vegna mála í Kína. Hægt er að spyrja sig hvers vegna heimurinn láti svona þegar aðeins er um verðfall á eignaraðildarhlutum í fyrirtækjum að ræða. Hægt er að spá í þetta og það geri ég

Mín hugsun hefur lengi verið sú að kommúnistaríkisstjórnum sé ekki treystandi fyrir neinu nema slæmu. Nú er það þannig að fjárfestingar (að búa til nýjar áþreifanlegar eignir) í Kína, eru undir stjórn þessara komma og þær eru um helmingur af landsframleiðslu. Helmingur!!!! Og þá skyldi maður ætla að þessar risavöxnu fjárfestingar skapi mikinn hagvöxt. Það hafa þær líka gert, um tíma. Þær hafa skapað vöxt alveg eins og bygging gamla Kínamúrsins bjó til vöxt á sínum tíma. Samt eru allar þessar fjárfestingar aðeins að búa til 5-6 prósent hagvöxt eins og er. Sumir ganga svo langt að segja að vöxturinn sé jafnvel orðinn neikvæður, þ.e. samdráttur

En það er ekki það sem mér finnst vera hið skuggalega í þessu. Nei það er sú óskaplega líklega staðreynd (sem sagt getgáta mín) að mest allar þessar fjárfestingar séu í nýjum Kínamúr. Að þær séu yfirgnæfandi flestar rangstæðar. Séu peningar sem notaðir hafa veið til að búa til ekki neitt nema feitt handa feitum kommum. Vegi sem enginn ekur eftir. Borgir sem enginn býr í. Skýjakljúfar sem standa tómir. Innviðir sem eins og Kínamúrinn gamli standa bara og sjást sem gervi úr gervi-hnetti

Sjálfur er ég sannfærður um að ríkisstjórnin í Kína hafi á undanförnum áratugum hamast við gerð stærstu manngerðu loftbólu veraldar. Sem er rangstæðar fjárfestingar (e. misallocation of capital) sem á eftir að springa svo hroðalega að japanska hrunið 1989 mun líta út sem himnaríki miðað við það sem í vændum er frá Kína. Og stjórnarfarslegir innviðir Kína eru að minnsta kosti jafn rotnir og í Úkraínu, sem er misheppnað ríki

Þrír milljón þýskir gámar láta úr höfn frá Hamborg til Kína á ári hverju, undanfarin fjögur ár. Þessi tala hefur hrunið um ca. tvö hundruð þúsund gáma til Kína á fyrsta helming ársins. Á þessu ári er þetta kannski hálf milljón gámar sem vantar, eins og er. En hvað ef þetta verður miklu miklu verra í mörg mörg ár? Þá þarf Þýskaland helst að kveikja í fleiru en einu landi á evrusvæðinu, til að lækka gengi evrunnar enn frekar

Hvenær er nú byltingin aftur? Hrunið er jú þegar byrjað

Í gær birtust endurskoðaðar hagvaxtartölur í Bandaríkjunum. Hagvöxtur er þar 3,7 prósent núna. Þetta er nóg fyrir bandaríska seðlabankann til að láta hendur standa fram úr ermum og hækka nú loksins stýrivextina upp í tölu sem er stærri en núll. Hvað munu núllin í ESB þá segja?

Fyrri færsla

Norska krónan og evran að hverfa

 


Bloggfærslur 28. ágúst 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband