Leita í fréttum mbl.is

Bíddu, er þetta ekki sjálfur áður-utanríkisráðherrann?

Frétt Mbl.: "Fórn­ar­lömb sjúks fjár­mála­kerf­is" (2. mars 2015 eKr.)

"Nei nei, við erum ekk­ert á þeirri leið"

Sem sagt: Eigum ekkert erindi þarna inn núna! Bíddu er þetta ekki sjálfur áður utanríkisráðherrann sem nú segir að Lýðveldið Ísland eigi ekkert erindi inn í Evrópusambandið, eins og sambandið er. Þetta er alveg makalaust. Þriggja þrepa ráðherrann gerir sér allt í einu ljóst að þegar maður er ekki heimilisfastur inni í púðurtunnu að þá er hægt að segja að maður eigi ekkert erindi þangað inn. Hvað skyldi annað útbrunnið þrep ráðherrans hafa sagt ef svo hörmulega hefði viljað til —og fyrir hans tilstuðlan— að Lýðveldið Ísland væri nú þegar heimilisfast inni í púðurtunnunni Evrópusambandið. Hvað hefði þá síðasta þrep ráðherrans sagt? Auðvitað hefði hann þá ekki sagt neitt og krafist þess að eyðilegging Lýðveldisins héldi viðstöðulaust áfram, svo að skattfrjálsar stöður ESB-elítu landsins kæmust ekki í uppnám. Jarmað ESB-sönginn áfram hvað sem það kostaði

Íslensku þjóðinni hefur af fyrrverandi og núverandi ráðherrum aldrei verið sagt frá því að Evrópusambandsaðild er óafturkræf sjálfseyðandi sporbrautarganga um sorpeyðingarstöð fullveldis og lýðræðis þar til að Lýðveldið Ísland er algerlega brennt upp til agna. En nú hrópar hann mamma mamma, ég orðinn bensínlaus!

Sósíalistískt gáfumannaveldi Evrópusambandsmanna á borð við þann sem hér kemur grenjandi upp úr rústum Evrópusambandsins og sem keimlíkt marx-lenínistum kennir "alþjóðlega fjármálakerfinu" (eftir hrun lesist: "vondum spekúlöntum") um, er vægast sagt aumkvunarverð tilraun til handaþvottar við vask númer eitt, tvö og þrjú í röð lyga um tollabandalagið fræga sem allt í einu á við "stjórnmálakreppu" að glíma. Hafið þið áður séð tollabandalag sem skyndilega hefur öðlast svo mikið eigið líf að það á allt í einu við "stjórnmálakreppu" að stríða? Nei það hafið þið ekki séð, því allt átti þar að vera svo "ópólitískt" og svo skinheilagt að jafnvel ókjörinn yfirstjórnmálamaður sambandsins, sjálfur seðlabankastjóri ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands, átti bara að vera "reglubundinn embættismaður", þ.e. bara eins konar "aðalritari vorsins" í pakkhúsi ESB

Evrópusambandið er ekki tollabandalag eins og reynt hefur verið að ljúga að þjóðinni og það er heldur ekki Evrópusamband. Það er einfaldlega þjóðríkisbanandi elítuveldi, ófriðarbandalag og stjórnlaus samkunda afglapa á háum launum

Það var Evrópusambandið sem eyðilagði til dæmis Landesbankakerfi Þýskalands. Og það var Evrópusambandið sem eyðilagði sanna verðlagningu og mat áhættu (risk premiums & risk spreads) í fjármálakerfum evrulanda. ESB heimtaði að öll ríki sambandsins fengju sömu vaxtakjör og sættu sama áhættumati. Það var meðal annars sagður sjálfur tilgangur myntbandalagsins

Evrópusambandið eyðilagði einnig Maastricht sáttmálann —sem það upp á punt skrifaði og markaðsfærði sem eins konar heilaga ritningu til að blekkja almenning og alþjóðlega fjármálamarkaði— með því að smygla áhættutöku einkageirans yfir á herðar skattgreiðenda. Byssu var síðan troðið upp í kjaftinn á evrulöndum og þeim skipað að sprengja þjóðfélög sín í loft upp til að bjarga þeirri fjármálabólu sem Brusselveldisklíkan bjó til og sem Myntbandalag Evrópuelíta nefnist, sjálfri evrunni, sjálfum Frankenstein fjármála í ESB

Er nú þetta allt sprungið sem stærsta fjármálabóla veraldarsögunnar framan í borgarna undir níunda rúgbrauðs tröllverki Evrópusambandsins. Það voru stjórnmálaembættismenn sambandsins sem bjuggu þetta viðrini og drápsvél velmegunar til með ERM og EMU. Slefið úr þessum fyrirbærum þeirra yfir Evrópu má rekja allar götur aftur til ársins 1977 og ostapólitíkur. Er evrusvæðið nú sem afleiðing þessa, hið versta efnahagsvæði veraldar og á sér litla sem enga framtíðarvon

Að fjármálamarkaðir hafi trúað lygunum sem flutu út úr aðalstöðvum Helgels Í Brussel er grátlegt. Þeir hefðu aldrei átt að lána þessu viðrini einn túkall með gati. Aldrei átt að trúa neinu því sem kom úr munni ESB-tölubana Brusselveldisins

Bandaríkin eru ekki í fullveldisáhættu eins og ríki Evrópusambandsins algerlega að þeim óspurðum eru höfnuð í. Í Bandaríkjunum er einungis tekist á í hefðbundnum átakastjórnmálum eins og alltaf hefur þar verið gert og kosningar í þeim eru virtar og völdin með glæsileika afhent næstu þjóðkjörnum fulltrúum bandarísku þjóðarinnar (transition of power). Í Bandaríkjum Norður-Ameríku hafa stjórnmál (politic) ekki verið þjóðnýtt eins og í Evrópusambandinu. Myntin Bandaríkjadalur er heldur ekki kirkjugarður ríkisstjórna, eins og evrusvæðið er

Trylltur, ofsafenginn og lygum varðaður áróður sósíalistaskjaldborgar ESB-lýðskrumara, er það sem hrjáir Evrópu í dag. Þetta ferðalag mun enda sem svo ömurlegt meginland taparanna, að það mun aldrei nokkru sinni eiga sér viðreisnar von. Evrópusambandið hefur drepið Evrópu og tendrað elda í veröldinni

Næsti kafli Jóns Baldvins, eftir hlé, mun svo fjalla um hvernig meira Evrópusamband (more Europe) á að bjarga Evrópu frá Evrópusambandinu. Hann mun heita; "bygging eldmúrs Evrópusambandsins gegn hagsæld og friði í allri álfunni", gjörið svo vel

Og svo var okkur að lokum sagt að gengju Eystrasaltslöndin bara í ESB og tækju upp evru, að þá væri þar ekki lengur neitt að óttast. Að þá gætu allir andað léttara. En hvað sjáum við í dag? Þarna hýrast menn ósjálfbjarga inni í hreysinu ESB og pissa evrum í leigðar og botnlausar buxur sambandsins

Ekkert er jafn eyðileggjandi fyrir frið og hagsæld í löndum eins og tilvist ríkis innan ríkisins. Evrópusambandið er sú hreina terpentína sem notuð er til að leysa ríkjaskipan þjóða upp. Sambandið og rotin heimspeki þess er einn mesti ófriðarvaldur sem heimurinn hefur séð öldum saman. Hvorki meira né minna. Evrópusambandið er eins og Brusselútgáfan af ISIS, en samt ennþá án hreinræktaðra morða. Það er Ríki í ríkinu sem brýtur niður ríkjaskipan veraldar; sjálfur óstöðugleikinn fullbúinn. Evrópusambandið er ein hættulegasta hugmynd veraldarsögunnar. Og eins og áður, eru krónískir sósíalistar því afskaplega hrifnir af henni. Á hvaða leið skyldi Jón Baldvin vera?

Fyrri færsla

Öryggismál borgarana

 


Bloggfærslur 3. mars 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband