Leita í fréttum mbl.is

Kynþátta úthreinsun aftur hafin í Evrópu

Í Evrópu er staðan orðin þannig að etnísk úthreinsun er þar hafin einu sinni enn. Stjórnmálamenn og yfirvöld gangast nú í það þarfa verk að hreinsa tungumál Evrópubúa af orðum og hugtökum sem tengjast kynþáttum, þjóðum og þjóðarbrotum. Orðið Dani þýðir allt í einu ekki Dani. Það þýðir hvað sem er annað

Það er Evrópuvélarrúm vinstri manna, sósíalisminn, sem eins og verjulega stendur fyrir kynþáttaúthreinsunum og skurðgreftri nýs árfarvegs fyrir fjöldamorð í Evrópu

En eitt orð er þó —eins og alltaf áður— undanskilið frá hreinsunareldi vinstri manna. Það er orðið Gyðingur. Það er og verður áfram notað til að lýsa kynþætti sem sósíalistar hata um alla Evrópu. Orðið Arabi og múslími þýðir hins vegar Dani, Svíi eða Frakki og ýmislegt annað sem unnið er að í aðalstöðvum eyðileggingar í Brussel

Brussel hefur lengi sagt að Evrópa sé ónýt nema að því tilskyldu að Evrópusambandið komist til meiri og meiri valda og bjargi henni. Eins og allir menn með ekkert vit vita, vinna menn alltaf ákafast fyrir og ausa fjármunum sínum annarra sem mest í að bjarga því sem ónýtt er. Hví vera að bjarga heilu meginlandi þar sem allt gott er jafn slæmt og allt vont 

Þarna er náttúrlega engin mótsögn í neinu. Nei nei. Og svo segir sambandið auðvitað að kristnin skuli ekki lengur teljast með sem sá þáttur samfélaga Evrópu sem nokkurs virði sé. Evrópa á kristni ekkert að þakka né að kenna um, og það fyrirbæri á því engan þátt í að móta neitt í sögu Evrópu, sem hófst auðvitað árið 1993

Það er því í aðalstöðvum ófirðarins og eyðileggingarinnar í Brussel, algerlega horft framhjá þætti hennar í mótun Evrópu hin síðastliðnu 2015 ár. Alveg eins og var í Þriðja ríki Adolfs Hitlers og í Sovétríkjum, sem bæði voru háborgir sósíalismans og fjöldamorða. Þar var sá þáttur í sögu Evrópu, kristnin, einnig þurrkaður út

Velkomin til Evrópu. Vertu velkomið Evrópumennið mitt. Loksins! Þetta gengur alveg skelfilega vel. Nýtt auðkenni er okkur fætt

Strengjabrúðkaupið er hafið, kæru vinir. Sú níunda í meðferð strengjabrúðuhljómsveitar Evrópusambandsins skilar sér alltaf svo vel: dansið á meðan hljómsveitin sú spilar, dansaðu inn í unterganginn þinn

Nú get ég víst ekki lengur sent Dönum neinar samúðarkveðjur, því hverjir eru þeir? Hvar skyldi ég nú hafa búið og starfað í 25 ár?

"Sovét Ísland, óskalandið, hvenær kemur þú?"

Ó ESB-Ísland, borgarastyrjöld, hvenær kemur þú!

Fyrri færsla

Spurt er: Hvaða sögubækur lest þú eiginlega?


mbl.is Árásarmaðurinn 22 ára Dani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. febrúar 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband