Leita í fréttum mbl.is

Spurt er: Hvaða sögubækur lest þú eiginlega?

Í athugasemd við bloggfærslu mína í gær;

Dresden 1945: frekar hráslagaleg söguskoðun, þykir mér

- sem fjallar um loftárásirnar á Dresden í febrúar 1945, er ég af eftirfarandi tilefni spurður eftirfarandi spurningar

"...héldu Rússar sér fast í kristin gildi Kirkjunnar"

Virkilega? Hvaða sögubækur lest þú eiginlega?

Svar

Í fyrsta lagi myndi ég aldrei lesa sögubækur sovéskra yfirvalda og áhangenda þeirra sem þýða myndi að allar sögubækur í skólakerfi sovéskra yfirvalda væru á andlegum bannlista hjá mér

Hefði ég nauðbeygður verið skólaður í svoleiðis skólakerfi þá hefði ég sem vöggugjöf frá foreldrum og ættmennum mínum haft til varnar innbyrðis í heilabúi mínu það sem kom þar inn með móðurmjólkinni. Og myndi ég ávallt ráðfæra mig við þá þekkingu, lífsskoðun og lífssiði yrði ég bombarderaður af andkristnum áróðri yfirvalda undir terror-ríkisstjórn glæpamanna á borð við Jósef Stalín, heilaskaðaðan mafíuforingjann Lenín og önnur glæpaverkfæri Kommúnistaflokks sósíalista

Frá því ári er 1917 nefnist voru meðlimir Rússnesku kirkjunnar um það bil 100 milljón manns (af ca. 160 milljóna heildarmannfjölda Tzar-Rússlands) sem deildu sér niður á 67 biskupsdæmi, með 55 þúsund kirkjum, með 57 þúsundum presta og 1500 klaustra með 95 þúsund munkum og nunnum

Komst svo Glæpaflokkur Kommúnistagengis Sovétríkjanna til valda og brenndi á árunum frá 1917 til 1929 um það bil 16 þúsund kirkjur niður á því tímabili. Á tímabilinu frá 1929 til 1939 (hinn Stóri terror Stalíns) stóð glæpagengi Kommúnistaflokksins enn fremur fyrir eyðileggingu á 24 þúsund kirkjum til viðbótar, þannig að á því herrans ári 1939, voru aðeins rúmlega 15 þúsund kirkjur eftir í Sovétríkjunum öllum. Þúsundir af prestum voru teknir af lífi á þessu tímabili og annað eins var sent í Gúlag Kommúnistaflokksins til niðurrifs og mannlegrar sem andlegrar tortímingar sósíalismans

Staðan í kringum 1940 var sú, að aðeins voru þá eftir 20 prósent af þeim 55 þúsund kirkjum sem voru í ríkinu áður en Kommúnistaflokkur glæpagengis Leníns og Stalíns rændu völdum. Hefðu yfirvöld þá framkvæmt skoðanakönnun, hefðu líklega núll prósent fólksins gefið til kynna að það aðhylltist Kristni og kristin gildi, því skoðanafrelsi var ekki leyft undir oki kommúnisma nómenklattúrískra yfirvalda og terror þeirra. Sama saga gildir að mestu leyti í öðrum kommúnistaríkjum sósíalista

Fólki var refsað og það tekið af lífi fyrir skoðanir sínar. Stjórnarskrá Sovétríkjanna og dómstólar þeirra leyfðu aðeins kommúnisma sem lífsskoðun og lífsmáta innan landamæra þeirra (að því leyti líkist hún heimspekilegum grunnstólpum stjórnarskrár, lagabálka, stofnana- og dómskerfis Evrópusambandsins, sem leyfir aðeins samrunahugmyndina í hinum heimspekilega grundvelli er stofnanir sambandsins hvíla á). En kommúnisminn og marxisminn var fluttur inn til Rússlands frá aðalstöðvum Helgels í Þýskalandi, sem er á meginlandi Evrópu. Ekki er því skrítið að Rússar hræðist Evrópusambandið í dag

En annað gilti hins vegar um þann kristna fjársjóð sem Kirkjan hafði plantað í hugum fólksins. Þau fræ hjálpuðu Rússum í gegnum terror kommúnistagengis Sovétríkjanna þar til hugarfarslega gereyðandi lífsskoðun þeirrar samkundu hundi til grunna ofan á fólkið með ömurlegum afleiðingum, eins og allt sem ekki er manninum samkvæmt og ekta á endanum gerir

Í dag eru 150 milljón manns í Rússnesku kirkjunni á veraldarvísu og yfir 70 prósent af lögráða fólki í Rússlandi aðhyllist Kirkjuna þó svo að kirkjusókn sé þar í sömu vandamálum og hér heima í ríki DDRÚV og sósíalista Íslands. En uppi í höfðinu vísaði landakort Kristninnar fólkinu veginn undir terror kommúnismans. Án þess vegvísis hefði lítið verið eftir til að snúa til baka til; nema maurabúskapar í maurabúi, þ.e. mannlegs svartnættis

Langi menn að fræðast frekar um kommúnismann, þá bendi ég til að byrja með á eftirfarandi fjórar bækur sem þrjár eru listaðar hér í dálknum til hægri:

1) Bent Larsen: Gulag og glemsel - Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda.

2) Niels Erik Rosenfeldt: Stalin - Diktaturets anatomi.

3) Þór Whitehead: Sovét-Ísland, óskalandið. Kommúnistaflokkur Íslands var deild í heims-byltingarsambandinu Komintern, sem stjórnað var frá Moskvu. Yfirlýst markmið flokksins var: Bylting og stofnun Sovét-Íslands. Hér lýsir Þór Whitehead í fyrsta sinn í samfelldu máli undirbúningi flokksins að byltingu í landinu og viðbrögðum íslenska ríkisins. Bókafélagið Ugla gefur út.

4) Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2). Almenna bókafélagið gefur út og segir réttilega: "Í þessari sérlega fróðlegu og vel skrifuðu bók er rakin saga íslenskra kommúnista í máli og myndum frá því að Brynjólfur Bjarnason tók þátt í götuóeirðum í Kaupmannahöfn haustið 1918 og fram til þess að þau Margrét Frímannsdóttir og Svavar Gestsson þáðu boðsferð til kommúnistaflokks Kúbu haustið 1998. Óslitinn þráður var frá fyrstu aðdáendum kommúnismans til hinna síðustu. Nú hafa allar myndir af Stalín verið teknar niður í betri stofum á Íslandi en eftir stendur, að hreyfing íslenskra kommúnista náði hér meiri áhrifum en víðast annars staðar í lýðræðisríkjum, ekki aðeins í stjórnmálum heldur einnig í verkalýðshreyfingu og menningarlífi".

Kveðjur

Nafni þinn Gunnar (meðlimur Íslensku þjóðkirkjunnar sem sósíalistískur forsætisráðherra Íslands 2009-2013 e.Kr., Jóhanna Sigurðardóttir, kvaðst íhuga að segja sig úr)

**** DANMÖRK og DDRÚV 14. febrúar 2015 **** 

PS: Í gær varð Danmörk, að sögn þarlendra yfirvalda, fyrir "verstu hryðjuverkaárás í nýrri tíma sögu landsins". Hvorki meira né minna! Hvað gerir þá sósíalistastofnunin DDRÚV í aðalfréttatíma þess dags hér á Íslandi, sem er eitt Norðurlandanna?

Jú, hryllingsatburðurinn í Danmörku er alls ekki fyrsta frétt í aðalfréttatíma stofnunarinnar! Þó svo að Ísland sé eitt af Norðurlöndunum! Sem fyrsta frétt var hins vegar af sporbraut kominn gervihnöttur hins pólitíska spuna sem stofnunin hefur undanfarna daga spunnið gegn fjármálaráðherranum og bagatelliseringu þess á orsakasamhengi eins atburða í Frakklandi um daginn. Sú aðgerð DDRÚV undanfarna daga og vikur neyddi því stofnunina til að forgagnsraða fréttum í aðal"fréttatíma" þess í gær, en ekki raunveruleikinn eins og hann valt fram. Skömmin neyddist því til að bíta í sjálfa sig og éta sig inn í höfuð sitt í gær og er það alls ekki í almannaþágu. Fjármunum og tíma stofnunarinnar er varið í að halda gervihnöttum þess á sporbraut við DDRÚV-snyrtistofu raunveruleikans. Smá meiki er klaskað framan í áhorfendur á hverjum degi þannig að úr verði helst á endanum; klessa

Þetta sýnir að DDRÚV flytur okkur ekki fréttir úr raunveruleikanum eins og hann er og veltur fram, heldur flytur það okkur boðskapsdagskrá (prédikun) sem er ekki raðað saman samkvæmt raunveruleikanum eins og hann gerist og veltur fram. Honum er raðað saman samkvæmt boðskapsdagskrá stofnunarinnar, sem er viðvarandi hápólitískur fréttaflutningur er nálgast áróður

RÚV starfrækir forgangs pólitíska dagskrá á kostnað skattgreiðenda (e. political priority agenda) og því ber öllum að taka fréttaflutningi þess með stórum fyrirvara, eins og var í Sovétríkjunum undir Sannleikanum - Pravda

Fyrri færsla

Dresden 1945: frekar hráslagaleg söguskoðun, þykir mér


Bloggfærslur 15. febrúar 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband