Leita í fréttum mbl.is

Stýrivöxtur ESB er sá að búa stanslaust til nýjar hörmungar

Evrópusambandinu tókst með miklum ágætum að búa til nægilega skemmandi kreppu, áföll og hörmungar með stofnun EMU myntbandalagsins, til að geta nú loksins fyrir alvöru kynnt til sögunnar "sameiginlega ríkisstjórn" kinkandi elíta sambandsins, sem af himnum dottna lausn á þeirri hörmungakreppu sem það sjálft bjó til henni til handa

Árið 1991 hefði það kostað ESB-elítuna það mikið of mikið að kynna þá þegar nýtt sovétbandaríki Evrópu fyrir síðustu kúnnum slíkrar kúgunar, að þess í stað var milliþrepið Myntbandalag ESB látið nægja. Það hefur nú unnið sitt verk. Það hefur tætt Evrópu niður í efnahagslega brunarúst sem á sér um aldur og ævi engrar mannsæmandi viðreisnar von

Tætlurnar af þeirri Evrópu sjást nú hangandi sem frjálst flögrandi borðtuskur á Schengen snúrustaurum Lissabonsamsteypu sáttmálaveldisins, sem frá upphafi átti að rústa því sem vannst með sigri Anglosphere yfir barbaraveldi Evrópu. Líkamlegur stýrivöxtur hins mannlega í Evrópu er því nú í höndum glæpagengja í stað friðarumgjarðar engilsaxneskra Bandamanna. Evrópa er orðin "lífsrými" utanáliggjandi glæpagengja og sáttmálabundið ófriðar- og lýðræðislegt barbarí

Streyma nú geislandi úraníum eindirnar stjórnlaust og ábyrgðarlaust undir stjórn glæpagengja inn sem nýr og efnilegur krítískur massi í tímasprengju elíta Evrópusambandsins í gegnum niðurbrotin landamæri, sem frá upphafi vernda áttu löndin gegn því sem er að gerast. Landamæri þessi búa nú í Brussel. Og beðið og beðið er til beljanna þar. Eins og að allt gott sé nú hafnað þar eins og var í Kreml Sovétríkjanna. Þar hét vont gott

Svo verður nýtt járntjald úr þessu nýja óefni reist yfir Evrópu. Því að vernda og gæta verður þessa nýja innvortis vopns elíta Evrópusambandsins gegn eyðileggjandi lýðræðisárásum frá eftirlifandi uppreisnarmönnum á öskuhaugum þjóð-ríkjanna. Fullveldisklofningnum inni í kjarnakljúf Evrópusambandsins skal tryggð næring, hvað sem það kostar

Allar góðar lausnir eru nú bannaðar. Ekkert skal fá að eyðileggja þennan krítíska massa Evrópusambandsins. Hans verður gætt eins vel og ósamrýmanlegu sameiginlegu myntarinnar sem vann sinn óverknað svo vel

Fyrri færsla

Þegar "ef marka má" er hárnákvæmt


Bloggfærslur 8. nóvember 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband