Leita í fréttum mbl.is

Þegar "ef marka má" er hárnákvæmt

Kvöldvers

Af göngu úr Skagafirði í Hvalfjörð

...neyðin er allt um kring. Dimmt er í heimi hér, hættur er vegurinn...

HAGVÖXTUR

Hér um þessar mundir er söngurinn um hagvöxtinn eitraða sunginn hátt af þeim sem efnahagsvöxturinn hefur skolað lifandi upp á fjörur íslensku þjóðarinnar. Sumum ónýta-Íslandsmönum er greinilega farið að leiðast vistin í Austur-Berlínarheimi Reykjavíkurborgar DDRÚV. Þeir hafa það sennilega of gott og langar í stálfátækt til að spóka sig í. DDR-nostalgían kallar. Þetta virðist vera ólæknandi sjúkdómur, eins og vantrúarofstæki svo kallaðra siðmenntamanna sem boða sína non-religion religion eins og nasistar og kommúnistar boðuðu sósíalisma sinn

Í tengdri frétt má sjá dæmi um hvaða afleiðingar það hefur þegar bakkað er um nokkur prósent í hagvexti, sem þá er orðinn samdráttur og brotthvarf hluta velmegunar - sem er ekki það sama og velferð. Hluti hagkerfisins skorinn burt. Allt í einu hefur íslensk þjóð þá ekki lengur efni á 5,8 sjúkrarúmum á hverja þúsund íbúa þjóðfélagsins, eins og hún hafði árið 2007. Hrunið í landsframleiðslunni vegna bankahruns þýddi að fimm árum síðar hafði þjóðin aðeins efni á 3,5 sjúkrarúmum á hverja þúsund íbúa. Mismunurinn er fallið í landsframleiðslu sem bakkaði, vegna bankahruns, álíka og aflahruns

Í frétt Morgunblaðsins er gefið í skyn að ekki sé alveg öruggt að marka megi fullyrðingar "Legatum Institute". Þessi varnagli er mjög svo réttmætur, því ekki er allt sem sýnist. Engin samantekt er fyrir neitt land, sem bendir til frekar þunns skilnings á þeim. Ekkert "summary" er að finna um neitt land

Þessi Legatum "stofnun" (með peningalegt aðalsetur í Sharíalaga ríkjum) setti í efnahagshluta skýrslu sinnar fyrir árið 2010, íslenska hagkerfið við hliðina á Líbanon, eða í sextugasta sæti. Engum fullvita manni sem þekkir til mála hefði dottið slíkt í hug. En í þessari nýju skýrslu "stofnunarinnar" er íslenska hagkerfið hins vegar tosað upp um 20 sæti vegna þess að "lánum í vanskilum" í fjármálakerfinu hefur fækkað! Og vegna þess að Gallup skaffaðar tölur segja að landsmenn líti bjartari augum á atvinnuhorfur. Á þetta að vera brandari?

Svona pappír er ekki hægt að taka alvarlega né nota til neins. Og sérstaklega er ekki hægt að taka þennan pappír alvarlega vegna frammistöðu hans mörg síðustu ár. Í topp sæti þessa lista trónaði nefnilega Finnland árum saman. Finnland er í dag "hinn sjúki maður Evrópu". Og sjúklingurinn sá er meira að segja álitinn ólæknandi. Og í Danmörku, sem færst hefur ofar á listnaum vegna þess að Finnland er búið að vera, já, þar velta menn alvarlega vöngum yfir þeim horfum sem blasa við; japönsk stöðnun næstu mörgu áratugina. Enginn hagvöxtur. Ekkert nema niðurslit á hagkerfinu sem eitt sinn var

Svo. Hvað er þá hægt að nota þennan löngu liðinn Legatum pappír í? Ekkert, nema til að þerra sig með. Stofnunin ætti að hefja framleiðslu á baksýnisspeglum. Nema að þetta sé bara PR-stunt

Fyrri færsla

Hætt að flagga í hálfa stöng vegna "erlendra ferðamanna"


mbl.is Færist niður um eitt sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. nóvember 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband