Leita í fréttum mbl.is

Þjóðríkið og Evrópusambandið

Matreiddar fréttir fréttamanna af málefnum Ísraels hafa í fulla fjóra áratugi haft flest að gera með það hvort fréttamenn eru þeirrar skoðunar að dagar þjóðríkisins sem manngæskuberandi grunnstofnun þjóða séu taldir, eða ekki. Þeir sem aðhyllast grunnhugsjónir Evrópusambandsins eru þeirrar heilaþvegnu skoðunar haldnir að þjóðríkið sé undirrót alls ills sem átti sér stað á síðustu öld

Athugið að þetta er sama fréttamanna- og fjölmiðlastéttin sem sá ekki fyrir fall Sovétríkjanna með bara eins mánaðar fyrirvara. Þetta er einnig sama fréttamannastéttin sem var algerlega clueless um stofnun Ísraelsríkis, sem samfellt í 60 ár hafði verið í undirbúningi

EKKERT stendur um aðdraganda stofnunar þjóðríkis Ísraels á prenti í neinum fjölmiðlum þessarar stéttar. Ekki einn stafur á prenti, fyrr en aðkoma stéttarinnar að útrýmingarbúðum á borð við Auswitch —þar sem reynt var að slátra heillri heimilislausri þjóð inni í stjórn- og þjóðernislausu heimsveldi undir stjórn stjórnleysis þriðja ríkisins og handlangara þess— varð þeim svo munngapandi opinberandi hryllilegt horror-áfall, að um allan heim myndaðist þá sá algerlega heilagi sannleikur um það hvað heimilislaus þjóð inni í ríkjasamsteypum raunverulega þýddi. Um það barbaríska ástand ríkti þá loksins alger og heilagur sannleikur. Algerlega heilagur sannleikur

Þegar Evrópusambandssinnar sem nú orðið stalínistískt eru þeirrar skoðunar að allt þetta hafi verið þjóðríkinu að kenna, þá matreiða þeir fram þvaðurlausn sem heitir Evrópusambandið og bera hana á hlaðborð fyrir framleiðendur frétta, sem dæla þvaginu af fréttaborðinu áfram inn í almenning. Öllum hryllingnum er klesst yfir á þjóðríkið sem stofnun. Það sem þessarar skoðunar menn sjá fyrir sér þegar þeir skoða Auswitch er þetta; þjóðríkið

Þegar Gyðingar hins vegar sjá, skoða, endurupplifa og hugsa um Auswitch þá sjá þeir þetta; heimilislaus þjóð leidd verndar- og varnarlaus til slátrunar undir keisaraveldisstjórnarfari rústaríkis og ríkjasamsteypu. Þeir sjá að þetta hefði aldrei getað gerst ef Gyðingar hefðu átt sitt eigið heimili: þjóðríkið

Ekkert ríki og engin þjóð hefur mátt þola eins mikið skítkast, rógburð og niðurrífandi áróður og Ísrael hefur mátt þola síðustu fjóra áratugi —nema ef vera skyldi Bandaríki Norður-Ameríku og Serbía— við það eitt erfiða grundvallar-verkefni að vernda líf og limi borgara sinna í eigin landi og úti í hinum stóra heimi. Þegar Ísrael gerir eitthvað í þágu þjóðarinnar þá fá þeir skítkast fyrir að gera það, alveg sama hvað um er að ræða. Allt sem Ísrael gerir fær það skítkast fyrir. Alveg sama hvað. Það sama gildir um Bandaríkin er þau sinna frumskyldum sínum og gera eitthvað fyrir sjálf sig, en ekki fyrir aðra. Það sama gildir einnig um Serbíu

Þessi lygavefur hefur nú náð svo langt undir myndun Evrópusambandsins síðastliðna fjóra áratugi að þar sjá menn Auswitch sem Ísrael !! Áróðurinn er orðinn slíkur. Og Gyðingahatrið sem virðist vera genetískt fyrirbæri í stórum hluta Evrópu er nú orðið svo sýnilegt að það liggur við að maður kasti upp

Til þess að Evrópusambandið geti haldið áfram að vaxa inn í nýtt evrópskt helvíti elítustéttar þess, þá þarf það og nómenklattúrískt áróðusrsapparat þess nauðsynlega að kasta svo miklum skít á þjóðríkið sem manngæskuberandi stofnun, að aðildarlöndin láti sambandið leiða sig, fullveldi sitt og sjálfstæði þeirra til áframhaldandi slátrunar í útrýmingarbúðum þess í Brussel

Þessi þvaður heimspeki Evrópusambandsins um hinn meinta tilvistargrunn sinn —að þjóðríkið sem stofnun sé ónýtt— krefst þess að þjóðríkið Ísrael sem loksins varð heimili fyrir þjóð án ríkis, verði sem allra fyrst rifið niður til grunna og af-lögmætt, því það er ekki gott til afspurnar fyrir Evrópusambandið að það sjáist svart á hvítu hvað verður um þjóðir þegar þær missa heimili sín

Sjálf tilraunaþjóðin, Gyðingar, gaf skít í "Perpetual Peace: A Philosophical (Schizophrenial) Sketch" Emmanuels Kants, sem var fyrsta elítutæra skóflustungan niður í öskubakka meginlandsins í uppgreftri afglapa eftir þjóðríkisbananum Evrópusambandinu

Þjóðin Gyðingar stofnaði hins vegar þjóðríkið Ísrael og fékk sér vopn til að verjast með. Aldrei aftur, segir sú þjóð

Í þessu stóra samhengi heimilisleysis, hefði þjóðin Íslendingar kannski dáið út

En hér heima rembast gelgjukrónískir embættis- og stjórnmálamenn við koma þjóðríki Íslendinga fyrir kattarnef inn í Evrópusambandinu. Þeir leika sér að eldinum. Þeir leika sér að eldinum

Fyrri færsla

Búið að stofna þau

Tengt

"dwell upon its horrors" 


Bloggfærslur 23. júlí 2014

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband