Leita í fréttum mbl.is

Fjölþjóðasúpan: George W. Bush Predicts ISIS In 2007

 
 

Það er alls ekki undarlegt að Ísrael skuli vera á tröppunum með nýja löggjöf sem undirstrikar enn einu sinni að þjóðríkið Ísrael sé áfram fyrst og fremst heimili Gyðinga. Með lögunum e. "Jewish State Law", sem forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu leggur fram, er stofnsáttmáli þjóðríkis Gyðinga uppfærður eftir tilraunir vissra afla sem reyndu að útþynna það sem Theodor Herzl setti í gang er hann ruddi brautina fyrir heimili Gyðinga

Ríkjandi kjarnorkuvetur fjölþjóðasamfélaga nágrannaríkjanna, eru vítin sem Ísrael ætlar að varast. Þar logar allt stafnana á milli í morðæði, styrjöld, hryðjuverkum og slátrunum á óbreyttum borgurum sem þrá það eitt að fá að búa í eigin þjóðríki með frelsi, lögum og rétti, en sem eru bara ekki til. Þetta eru allt framaskriðin Evrópusambönd sem komin eru á endastöð sína; sérhönnuð af embættismannaverki a la ESB, með engan sjálfsákvörðunarrétt

Syria: hannað af Frökkum: inniheldur fimm þjóðir

Írak: hannað af Bretum: inniheldur fjórar þjóðir

John Stuart Mill vissi nákvæmlega hvað gerist í svona ríkjum. Þess vegna barðist hann fyrir þjóðríkinu sem hinni fremstu manngæskuberandi stofnum veraldarsögunnar

Svona verður Evrópusambandið (inniheldur 30 þjóðir). Það verður summan af Úkraínu, terror Sovétríkjanna og Mið-Austurlanda. Steikhús frelsis, velfarnaðar og öryggis - fjórða ríkið

"In Europe, the result has been the attempt to dismantle the system of independent nation-states and replace it with a European Union"

Jerúsalem-bréf Yoram Hazony, númer 31, er allrar athygli vert; Israel’s ‘Jewish State Law’ and the Future of the Middle East

Fyrri færsla:

Kissinger: Mistök að hefja refsiaðgerðir gegn Rússlandi

Tengt:

Standards, Fallen (WSJ, Peggy Noonan)

President George W. Bush and President Bill Clinton discuss Presidential Leadership Scholars (The Bush Center, YouTube)


Bloggfærslur 26. nóvember 2014

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband